Landsmót SÍSL á Selfossi
Nú eiga allir stjórnendur að hafa fengið skráningarform í tölvupósti og við í stjórninni vonumst eftir skjótum svörum því margt þarf að skipuleggja.
Mótið verður með svipuðu fyrirkomulagi og síðustu landsmót skipt í gula,rauða,græna og slagverks sveit en einnig mun Lúðrasveit Æskunnar verða með og halda tónleika á laugardeginum fyrir hinar sveitirnar og taka þátt í lokatónleikum mótsins.
Áætluð mæting er á bilinu frá kl.17 til 18 þann 7.okt. og mótsslit áætluð fyrir kl.15:00 á sunnudag 9.okt..
Sjáumst sem flest með góða skapið með okkur.