Lúðrasveit Æskunnar
Lúðrasveit Æskunnar 2011
23. – 25. september og 7. – 9. október
Lúðrasveit Æskunnar er sameiginleg úrvalssveit skólahljómsveita á landinu.
Æft verður tvær helgar 23.- 25. september í Grafarvogi og á landsmóti C/D sveita á Selfossi 7. – 9. október. Stjórnandi verður Guðmundur Óli Gunnarsson aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að vera meðlimir í hljómsveit eða tónlistarskóla sem er aðili að SÍSL. Nemandi þarf að hafa lokið a.m.k. grunnprófi og skuldbindur sig til að taka þátt í öllu námskeiðinu. Takmarkaður fjöldi er á hverja rödd. Stjórn SÍSL áskilur sér rétt til að velja/meta umsækjendur ef margir umsækjendur sækja um sömu raddir.
Heildarkostnaður fyrir báðar helgarnar eru kr. 14.000,- . Innifalið í því er gisting báðar helgar í skólastofum fyrir þá sem það vilja, fæði, námskeiðskostnaður og allt tilheyrandi.
Verkefni sem m.a. eru áætluð: Suite Francaise eftir D. Milhaud, Suite Arktica eftir Pál P. Pálsson, Pomp and Circumstance eftir E. Elgar og eitt verk eftir Pál Ísólfsson.
Sækið um þátttöku með því að smella á þennan link
Umsóknarfrestur er til 1. september 2011
Nokkur ár eru síðan síðast var sett saman Lúðrasveit Æskunnar(LÆ) það er því mikilvægt að taka höndum saman núna og vanda vel til verka. Best er að senda inn umsóknir sem allra fyrst.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá stjórn SÍSL
Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson, Vilborg Jónsdóttir