Fundargerð 2001-13 --- 3. desember
Dagsetning:
Mon, 03/12/2001
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn í húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs
mánudaginn 3. desember 2001 kl. 10,00.
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
1. Heimasíðan. Síðan er nokkurn vegin tilbúin en vantar aðgangsorð og númer frá Margmiðlun til að geta sett síðuna á netið. Ýta þarf við vefstjóra og koma síðunni á netið sem fyrst. Samþykkt að fundargerð þessa fundar yrði sú síðasta sem færi út með venjulegum pósti, í framtíðinni verða fundargerðir einungis á heimasíðunni. Í framhaldi af því væri gott að fá netföng bæði hjá lúðrasveitunum sjálfum og stjórnendum þeirra (og skólastjórum?) svo hægt sé að senda tilkynningar skjótt og vel til félagsmanna. Einnig er ástæða til að benda mönnum á að það er ekkert mál að gera heimasíðu og gaman væri að sem flestar skólalúðrasveitir kæmu sér upp einni slíkri. Í dag veit undirritaður bara um heimasíðu Skólahljómsveitar Kópavogs (http://skolahljomsveit.kopavogur.is) og að Skólahljómsveit Grafarvogs er með síðu á vef Reykjavíkurborgar á http://www.reykjavik.is/midgardur.nsf/pages/skolahlj.htm.
2. Þakkarbréf. Birgir setti stafina sína undir þakkarbréf til Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Gunnars Gunnarsonar skólastjóra fyrirað lána endurgjaldslaust húsnæði skólans og hljóðfæri fyrir námskeið Lúðrasveitar Æskunnar í vor og síðasta vetur. Stefán Ómar afhendir Gunnari bréfið.
3. Skráning í símaskrá. Mikil umræða varð um þetta mál og niðurstaðan er þessi:
Samtök íslenskra skólalúðrasveita (SÍSL)
Birgir D. Sveinsson formaður.... 566-6174
Netfang: sisl@sisl.is
Veffang: http://sisl.is
Stefán Ómar tekur að sér að ganga frá skráningunni. Þetta er þó með þeim fyrirvara að eftir er að skrá netfangið, en það ætti ekki að vera vandamál.
4. Peningamál. Farið yfir stöðuna í peningamálum og árið gert lauslega upp. Flest allt uppgert og frágengið. Vantar nokkur gjöld frá stjórnendanámskeiðinu og eftir er að gera upp við Þorleik vegna LÆ.
5. LÆ. LÆ er stærsti einstaki útgjaldaliður SÍSL. Eðlilegt þykir að sem flestir fái að njóta þess að komast í hana. Uppistaðan hefur reyndar verið úr 3 - 4 sveitum undanfarin ár, en umsóknir hefur vantað frá fleiri lúðrasveitum og sveitarfélögum. Rætt hvort SÍSL geti greitt ferðastyrk fyrir þá sem eiga lengra að. Setja þarf vinnureglur og verksvið framkvæmdastjóra. Bæta þarf samskiptaleiðir við stjórnendur og nemendur LÆ. Erfitt reynist að finna heppilegan tíma fyrir LÆ námskeið á vorönninni, þar sem mars mánuður er væntanlega þéttsetinn tónleikum skólalúðrasveita, apríl er erfiður vegna páska og ferminga og maí vegna prófa í grunn- og framhaldsskólum. Upp kom sú hugmynd að hafa LÆ sem sumarnámskeið, t.d. frá fimmtudegi til sunnudags helgina eftir 17. júní.
6. Nótnaútgáfa. Ákveðið að selja þeim sem hug hafa á, verk Páls P. Pálssonar Suite Arktica II á kr. 5,000. Áhugasamir ættu að hafa samband við Össur á skolahljomsveit@kopavogur.is . Þetta verk verður ekki sent til hljómsveitanna heldur verða menn að bera sig eftir því.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 12,00
Össur Geirsson
ritari