Fundargerð 2002-02 --- 20. febrúar

Dagsetning: 
Wed, 20/02/2002

Stjórnarfundur SÍSL,

haldinn að Urðarstíg 10 í Hafnarfirði

miðvikudaginn 20. febrúar 2002 kl. 9,30.

 

Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.   Þorleikur Jóhannesson framkvæmdarstjóri LÆ var boðaður á fund en tilkynnti forföll vegna veikinda skömmu eftir að fundur hófst.

1.      Árgjöld SÍSL.   Greiðsluseðlar eru farnir út fyrir árgjaldinu að upphæð 7.500 krónur.

2.      Heimasíðan.  Nýlega var heimasíðunni breytt þannig að hægt er að vinna hana með forritinu FrontPage.  Þar með verða allar breytingar og uppfærslur mun auðveldari og gefur síðunni möguleika á að verða lifandi og virk.  Upplýsingar um tónleika og annað í starfi íslenskra skólalúðrasveita sem fréttnæmt er, verða birtar á síðunni og því er nauðsynlegt að tilkynningar um slíkt séu sendar til umsjónarmanns síðunnar (Össurar), á netfangið brass@centrum.is .

3.       Lúðrasveit Æskunnar. Stefnt að sumarnámskeiði, helgina eftir 17. júní.  Vegna forfalla Þorleiks var ekki farið nánar í málefni LÆ, en ákveðið að boða fund að nýju innan skamms tíma.

4.      Dagur lúðrasveitanna.  Stefnt er að því að halda hátíðlegan dag lúðrasveitanna laugardaginn 1. júní.  Hugmyndir komu fram um skrúðgöngu sem flestra lúðrasveita niður Laugaveginn, jafnvel í samvinnu við Hitt Húsið, sem ef  til vill getur útvegað hópa til að ganga í göngunni á milli hljómsveitanna.  Hugmynd um sameiginlega tónleika á Ingólfstorgi þar sem þær sveitir sem ekki €œmarsera€ gætu verið með.  Einnig kom upp hugmynd um tónleika í Vetrargarðinum í Smáralind, til að þurfa ekki að hafa áhyggjur af veðrinu.  Til að ganga betur frá dagskrárhugmyndum er nauðsynlegt að halda fund með stjórn SÍL innan skamms.

Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 10,45 


Össur Geirsson

ritari