Fundargerð 2005-12 --- 2. september
Dagsetning:
Fri, 02/09/2005
Stjórnarfundur SÍSL
Haldinn í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi 2. september 2005.
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
-
Lúðrasveit Æskunnar. Vegna dræmrar þátttöku, tók stjórnin þá ákvörðun að sleppa inntökuprufuspili inn í hljómsveitina þetta skiptið. Verður öllum hleypt inn í námskeiðið. Farið var yfir hentuga staði fyrir fyrirhugaða tónleika sveitarinnar.
-
Landsmót. Farið var yfir útistandandi verkefni fyrir landsmótið, svo sem matarpantanir og bolir.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.