10. Stjórnarfundur 2011
Dagsetning:
Wed, 22/06/2011

Stjórnarfundur SÍSL – Fundargerð
10. fundur 2011, símafundur 30. Maí kl. 8.30
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson og Vilborg Jónsdóttir
- Rætt um að sækja um í tónlistarsjóð
- Vallaskóli á Selfossi tekur 450 manns í gistingu, það verður hámarksfjöldi á C/D mótið, Jóhann Stefáns sér alfarið um þetta Eggert talar við hann.
- Stjórnendur sem verið er að skoða að tala við eru: Rúnar Óskarsson, Brjánn Ingason, Róbert Darling, Alberto Carmeno, Kjartan Óskarsson. Búið að tala við Kaldo Kiis, hann vildi ekki og Daníel Bjarni var upptekinn.
- Laun stjórnanda er 100 þús. Ásamt fæði og húsnæði á mótinu.
- Trommuhópur, spurning um að getuskipta hópnum, æfa t.d. latin. Fá Frank Aarnik til að taka að sér trommarana og undirbúa það verkefni.
- Búið að ræða við hljómsveitina Veðurguðirnir, mjög dýrir taka 500 þús. Viljum hljómsveit sem virkar fyrir þennan hóp, má vera eitthvað annað. Hljómsveit á Selfossi sem Jói ætlar að tala við. Spurning um að fá skemmtiatriði t.d. Ingó eða Jón Jónsson
- Hvað eru margir að senda þátttakendur á C/D mót? Mjög líklega innan við 20 hljómsveitir að taka þátt. Í Mosó voru frá 14 stöðum. Og um 25 trommarar
- Óskum eftir að fá Össur Geirsson til að útsetja lag eða lög eftir Pál Ísólfsson
- Vantar upplýsingar um skiptingu milli sveita á landsmóti, þarf að finna eldri fundargerð frá þessum tíma. Halldór og Eggert skoða það
- Mikilvægt að geta sent póst í nafni sísl. Eggert ræðir við Malcolm vegna ritstjóra aðgangs að sísl síðunni.
- Þurfum að sjá útsetningar eftir Snorra Heimisson af Bahama og lög eftir Magnús Eiríksson útsett af Jóhanni Mór.
- Ræða við reynda stjórnendur varðandi lagaval t.d. Karen.
- Þurfum að hlusta á Avatar og meta hvort það nýtist okkur
Fundi slitið kl. 9.45