11. Stjórnarfundur 2011
Dagsetning:
Wed, 22/06/2011

Stjórnarfundur SÍSL – Fundargerð
11. fundur 2011, símafundur 20. júní kl. 8.30
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson og Vilborg Jónsdóttir
- Búið að ráða Brján Ingason til að stjórna einni sveitinni á C/D mótinu, ekki hefur gengið að ná í Rúnar.
- Þarf að ná sambandi við Guðna Franz til að innheimta nótur sem hann er með
- Eggert leggur til að fá Einar Jónsson til að útsetja lag eftir Shakira – Vagga, vagga sem gæti nýst sem trommulag
- Á að fá Einar Jónsson til að aðstoða Snorra Heimis við að laga útsetningu af Bahama.
- Þarf að laga lög eftir Magnús Eiríksson sem Jóhann Móravek hefur útsett fyrir sína sveit.
- Þarf að ýta á Jón Björgvinsson varðandi útsetningu af Gordjöss
- Þarf að ýta á Össur Geirsson varðandi útsetningar af lögum Páls Ísólfssonar
- Vantar tékklista yfir landsmót – Eggert ætlar að útbúa einn slíkan
- Bolir á landsmótið, þarf að útbúa eða velja mynd aftan á bolina. Fá Jóhann Stefáns til að kanna það. Þarf einnig að skoða sísl logo vegna bolaframleiðslu
- Bros – bolir hafa séð um framleiðsluna
- Jóhann Stefáns búinn að ræða við hljómsveit fyrir ballið um kvöldið
- Malcolm hefur ekki svarað varðandi stjórnenda aðgang á sísl síðuna svo hægt sé að senda póst í nafni sísl. Spurning hvort Einar Jónsson hafi þessi leið?
- Armbönd? Einar geymir þau, spurning hvort það sé nóg af þeim. Fyrirtækið „Margt smátt“ með armbönd ásamt medalíum.
- Þarf nýjan bikar fyrir mótið fá Jóhann Stef. Til að tala við Rótary á Selfossi um að gefa bikar. Síðast keyptur bikar af aðila á Akranesi, þarf að vera til einn bikar á hverju landsmóti og ekki nota hann of lengi.
- Eitthvert logo frá Akranesi sem hefur verið notað á landsmótum, þarf að endurskoða það.
- Þurfum að muna eftir A/B mótinu og kanna hverjir verða tengiliðir þar? Vilhjálmur Ingi, Hjörleifur, foreldrafélagið, allir?
- Athuga með að það er takmarkaður fjöldi þátttakenda á Selfossi – 450.
Fundi slitið kl. 10.00