13. stjórnarfundur 2011
Dagsetning:
Mon, 29/08/2011

Stjórnarfundur SÍSL – Fundargerð nr. 13
13. fundur 2011, símafundur 29. ágústkl. 8.15
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson og Vilborg Jónsdóttir, Jóhann Stefánsson, Karen Sturlaugsson, Einar Jónsson og Lárus Grímsson
Allir stjórnarmeðlimir aðal- og varastjórn ásamt Jóhanni frá Selfossi og Einari boðaðir á fundinn. Daði Þór boðaði forföll
- Rætt um umsóknir hjá LÆ. Ekki komnar nægilega margar umsóknir og heldur fleiri frá þeim yngri en eldri búnir að sækja um. Þarf að hvetja krakkana til að taka þátt. Hver stjórnandi að skoða sinn hóp og hafa samband við nemendur sem ættu erindi í LÆ
- Þarf að búa til nákvæmari dagskrá æfingahelgarinnar fyrir LÆ svo hægt sé að skipuleggja foreldrahópinn sem verður í Foldaskóla. Guðmundur Óli er að fara yfir dagskipulagið.
- LÆ verður með tónleika á laugardag, spurning hvort það þurfi að vera eitthvert skemmtiefni til að spila?
- Flestar sveitir að hefja starf í þessari og næstu viku.
- Landsmót var næsta umræðuefni
- A/B mótin orðin mjög fjölmenn. Spurning hvort ætti að skipta mótum á annan hátt til að jafna út fjölda á mótunum? T.d. A – mót og svo B/C mót? Þarf að skoða fyrir næstu landsmót eftir 2 ár.
- Er form mótsins heppilegt? Þ.e. að skipta í gulan, rauðan, grænan? Form mótanna þarf alltaf að vera í endurskoðun.
- Mikilvægt að stjórnendur raði sínum nemendum í rétta getuskipta hópa, ekki láta þau hafa of erfið verkefni.
- Stjórnendur vilja fá nótur á netið sem fyrst svo hægt sé að byrja að æfa
- Nýjar útsetningar ekki tilbúnar, þarf að fara með aðrar nótur í ljósritunarstofu og setja á heimasíðu SÍSL
- Landsmótið verður haldið á Selfossi
- Gisting og æfingar verða í tveim grunnskólum og tónlistarskólanum. Íþróttahúsið verður notað sem tónleikastaður og fyrir ballið. Sundlaugin við hliðina á. Sturtuaðstaða í íþróttahúsinu.
- Þarf að skipuleggja vel sund og sturtuferðir
- Á laugardagskvöld er búið að panta Ingó veðurguð og hljómsveit á Selfossi. Ballið getur orðið til kl. 01.00 ef við viljum það.
- Hvað gerum við svo annað á mótinu en að spila? Heilmiklar umræður fóru fram um hvernig væri hægt að hrista saman hópinn. Bjóða t.d.sveitunum að koma með skemmtiatriði. Föstudagskvöldið gæti verið opið fyrir skemmtiatriði eða tónleika frá einhverri sveit. Jóhann sagði að hugsanlega væri hægt að fá Stórsveit Suðurlands til að spila ef við viljum það.
- Það væri líka hægt að vinna meira með litasveitirnar og þær gerðu einhverja hluti til að kynnast betur. Hægt væri að búa til valflokka þar sem allir velja sér eitthvert verkefni til að vinna að. Gæti bæði verið innan litasveitanna eða sem einstaklingar. Þá þarf meira starfsfólk til að sinna þeim verkefnum. Það gætu verið foreldrar úr sveitunum. Stjórnarmeðlimir ætla að vera í samskiptum á netinu til að koma með hugmyndir.
- Spurning hvað þarf að æfa mikið til að lögin hljómi á sunnudag. Ef undirbúningur er góður hjá nemendum þá er alveg tími til annarra hluta.
- Jóhann var líka búinn að ræða við þá á Draugasetrinu á Stokkseyri. Þar geta þeir tekið á móti um 100 manna hópum í einu. Með rútunni myndi sá pakki kosta kr. 1500 á mann.
- Ballið verður í íþróttahúsinu og mögulegt er að gera salinn meira kósí með ljósum.
- Umgengnisverðlaunin/prúðmennskuverðlaun – þarf að ræða þau fyrirfram við stjórnendur. Stjórn þarf að búa til lista yfir hvað er verið að meta í þessum verðlaunum.
- Snyrtileg stofa? Framkoma á mótinu? Umgengni í matsalnum? Alltaf erfiðara fyrir stóru sveitirnar.
- Foreldrahópurinn sem sér um eftirlitið er fljótur að sjá frá hvaða sveitum nemendur eru og geta vel staðsett hópinn.
- Ræða prúðmennskubikar bæði við mótssetningu og mótsslit
- Tónleikar á sunnudag verða kl. 13.00 og heimferð og mótsslit að þeim loknum.
- Landsmótsblað verður gefið út á Selfossi. Það þarf að skila inn greinum og myndum fyrir 20. September. Gaman að hafa fjölbreyttar myndir frá sveitunum.
- Mynd á bolina og merkin verður merki Tónlistarskóla Selfoss
- Foreldravakt verður allan sólarhringinn frá foreldrafélaginu á Selfossi 2 – 3 foreldrar hverju sinni.
- Mæting á föstudag á Selfossi milli kl. 17 – 18 og mótssetning kl. 18.00
- Tölvupóstsendingar frá SÍSL heimasíðunni hefur ekki skilað sér til allra.
Fundi slitið kl. 9.40