15. stjórnarfundur 2011
Dagsetning:
Tue, 27/09/2011

Stjórnarfundur SÍSL – Fundargerð nr. 15
15. fundur 2011, símafundur 19. September kl. 21.00
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson og Vilborg Jónsdóttir, Jóhann Stefánsson
- Fjöldatölur fyrir landsmótið áætlað 200 – 300 þátttakendur.
- Aðeins 2 stjórnendur búnir að senda inn efni í blaðið. Það eru Össur og Vilborg
- Hugsanlega koma nemendur frá Ísafirði og frá Fáskrúðsfirði, mjög ánægjulegt. Engir koma frá Höfn að þessu sinni.
- Halldór ætlar að senda póst til að ítreka að fá staðfestingu frá þeim stöðum sem ætla að taka þátt í þessu móti svo hægt sé að hafa sérstaklega samband við þá staði.
- Mótsgjaldið er fyrir alla þátttakendur, stjórnendur og aðstoðarmenn. Innifalið er gisting, matur,skemmtun, ball, sund, draugasetur og þátttaka í öllu mótinu. Ekki er neitt gjald fyrir hverja hljómsveit.
- LÆ krakkar borga ekkert fyrir sína æfingahelgi.
- Jóhann mun koma fánum í bæinn
- Jóhann búinn að útvega bikar fyrir prúðmennsku. Hugmyndin að hver bikar verði veittur ca. 3x og síðan verði hann til eigna á upphaflega staðnum.
- Halldór ætlar að finna textann og SÍSL logo sem á að skrifa á bikarinn og koma til Jóhanns.
- Eggert sér um að panta boli núna í vikunni. Jóhann þarf að senda logo til að hafa aftan á bolunum.
- Panta á gulan, rauðan, grænan, bláan, svartan. Nota fullorðinsstærðir.
- Sleppa hvítum bolum og kaupa auka stórar stærðir í litunum fyrir aðstoðarmenn.
- LÆ notar bláa boli og fer í mátun næstu helgi.
- Líklega verða um 30 manns í vinnu á Selfossi við alls konar aðstoð.
- Þarf að senda út tölvupóst til hljómsveita um hverjir vilja spila á föstudagskvöldi
- Skipuleggja þarf ferðir í Draugasetrið. Trúlega 4 holl sem byrja eftir hádegi. Tekur um klst. og 15 ferðin. Jóhann sér um skipulagið.
- Rúmlega 100 geta borðað í einu og gert ráð fyrir hálftíma á sveit
- Þarf að búa til dagskrá fyrir landsmótið. Ekki kaffæra liðið í æfingum.
- Skipuleggja þarf hvenær er sund/sturta
- Hvað þýðir ró á gististöðum? Og hvenær verður ró?
- Á laugardag er ball til kl. 01. Eðlilegt að ró verði komin kl. 02
- Enn eru lausir endar varðandi dagskrá föstudagskvölds. Vantar hljómsveitir til að spila eða spurning með aðra dagskrá t.d. Stórsveit Suðurlands.
- Jóhann ætlar að búa til dagskrá og senda okkur í vikunni
- Spurning um að fá bæjarstjórann á Selfossi til að tala.
- Mótsslit og afhending prúðmennskubikars verður um kl. 14.30 – 15.00
- Búið er að græja sendibíl sem við höfum alla helgina í flutninga.
Fundi slitið kl. 22.30