18. stjórnarfundur 2011

Dagsetning: 
Mon, 24/10/2011


Stjórnarfundur SÍSL – Fundargerð nr. 18
 
18. fundur 2011,símafundur 3. október kl. 8.15
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson,Vilborg Jónsdóttir, Jóhann Stefánsson
 

  • Vantar enn upplýsingar frá einni hljómsveit
  • Athuga með að fá far fyrir Ísfirðingana frá Reykjavík á Selfoss, spurning um að fá þá í aðstoð á mótinu.
  • Aðstoðarmenn í sveitirnar. Halldór kominn með tillögur
    • Gul: Lárus Halldór Grímsson og Edward Jóhann Frederiksen
    • Rauð: Daði Þór Einarsson og Gestur Áskelsson er vont að festa Gest þar sem hann er jú í gestgjafahlutverki , kannski Margréti
    • Græn: Skarphéðinn Einarsson og Einar Jónsson þetta eru náttúrulega 2 brassmenn og Róbert er það líka ?
  • Minna stjórnendur að hafa nótnastóla fyrir alla
  • Gisting fyrir stjórnendur á Gistiheimilinu Menam
  • Einar kemur með partitúra af nýju útsetningunum fyrir stjórnendur
  • Það þarf að heyra betur í Eggerti Pálssyni slagverksmanni
  • Athuga hvaða slagverksleikarar vilja vera í hljómsveitunum?
  • Erfitt að ganga frá mætingu á landsmótið þar sem stjórnendur svara seint.
  • Þurfum 4 trommusett
  • Þarf að passa að það séu kaffitímar hjá öllum hljómsveitum
  • Prúðmennskubikarinn:  er fyrir framkomu, umgengni, kurteisi og annað sem þykir til fyrirmyndar
  • Mótssetning: Formaður setur mótið, fulltrúi bæjarsjórnar,  Skólahljómsv. Mosfellsbæjar, sameiginleg sveit Skolaus og Skólahljómsv. Kópavogs, Skólahljómsveit Reykjanesbæjar.
  • Upplýsingafundur eftir tónleikana um kl. 22.00
  • Upplýsingafundur á laugardag um kl. 19.00
  • Óska eftir að fólk taki til á sunnudagsmorgun eftir því sem hægt er.
  • Róbert Darling búinn að skipta um lag í grænu sveitinni. Tekur út Avatar og setur inn Celtic ritual eftir John Higgins. Þar að senda út breytingar
  • Þarf að ganga frá sendibílapöntun hvort við fáum bíl með lyftu eða ekki. Nauðsynlegt að fá lyftubíl til að flytja stólana.
  • Athuga með ljósmyndara á mótið
  • Eggert talar við Pál Magnússon útvarpsstjóra og óska eftir að Magnús Hlynur á Selfossi verði með fréttaskot.
  • Athuga þarf athugasemdir varðandi mataróþol í umsóknum
  • Einn aðili kemur með matinn sinn sjálfur v. Mataróþols
  • Í lok mótsins verður gos, svali og prins póló, kokkurinn sér um að panta það.
  • Senda út dagskrána til stjórnenda.

 

  • Fundi slitið kl. 9.30