Félagsfundur 21. okt 2011

Dagsetning: 
Mon, 24/10/2011


Félagsfundur SÍSL haldinn í Laugarnesskóla 21. Október kl. 10.00
 
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Eggert Björgvinsson,Vilborg Jónsdóttir, Jóhann Stefánsson, Daði Þór Einarsson, Einar Jónsson, Gestur Áskellsson, Karen Sturlaugsson, Þorvaldur, Margrét Sigurbjörnsdóttir, Össur Geirsson, Lárus Grímsson,
 
Dagskrá
 
·      Umræða um nýafstaðið landsmót.
·      Tímasetning.
·      Laga/verkefnaval.
·      Þátttökutilkynningar, áreiðanleiki, tímamörk o.s.fr..
·      Óskir um að eldri sveitir fari í lengri ferðalög og yngri í styttri.
·      Er komið að því að ráða framkvæmdastjóra í 50% starf í t.d. tvo mánuði fyrir landsmót ?
·      Fyrirkomulag landsmóta eldri sveita C/D mót eða B/C mót og LÆ eða ? Námskeiðs, æfingabúða, eða tónleikafyrirkomulag.
·      LÆ og framhaldið, gæti LÆ komið fram sem atriði á Nótunni (lokahátíð), í Hofi á A/B móti í vor. Hversu lengi „á“ hljóðfæraleikari sæti sitt í sveitinni.
 
Stjórnendur beðnir um að tjá sig um nýafstaðið landsmót á Selfossi.
 
Einar:mótið heppnaðist vel, námskeiðaformið virkar vel, ómöglegt hvað vantaði mikið af nótum fyrir hljóðfæraleikarana, óskipulag í slagverkinu, fínt húsnæði en ansi þröngt fyrir LÆ
 
Eggert:  Krakkarnir ánægðir. Slagverkið ekki í lagi.
Landsmótið stendur ekki undir sér, eitthvað landsmót þarf að gefa pening til að hægt sé að sinna verkefnum.
 
Daði: Flott mót og stutt á milli staða sem er gott. Vill halda áfram með LÆ. Upplýsingar til stjórnenda komu seint og dagskráin. Nemendur hans í hljómsveitinni tóku sjálf ákvörðun um að leggja metnað í Umgengis-hegðunarbikarinn(þau unnu hann). Slagverkið í lausu lofti.
Telur ekki að starfsmaður fyrir SÍSL myndi taka af allan kúfinn í vinnu.
 
Gestur:Slagverki verst og verkin þar ekki flutt. Vantaði aðstoðarfólk í sveitirnar, sérstaklega hjá þeim yngstu.
 
Jóhann:Form mótsins þarf að vera svona fyrir sveitir utan af landi. Slagverkið í steik. Vantaði nótur hjá mörgum. Vantaði einnig betri dreifingu á röddum. (Aðal)Stjórnendur á mótinu stóðu sig vel, spurning um Brján þar sem hann fékk erfiðustu sveitina og með minnstu reynsluna. Þröngt um LÆ.
 
Lárus:Vantaði aðgengi að ljósritunarvél og verkefnaval dálítið erfitt. Róbert mjög vanur maður. Gula sveitin leit illa á út á föstudag með erfið verkefni og minnst þjálfaðan hljómsveitarstjóra.
 
Þorvaldur:Slagverksleikarar ættu að vera í hljómsveitinum, þeir voru ekki svo margir og lítið mál að útvega öllum hlutverk.
Einar:  Skráning kemur svo seint að það er erfitt að vita hvernig slagverkið verður. LÆ mætti gjarnan vera áfram. Mætti bæta við á mótið masterklassa í 2 tíma fyrir öll hljóðfæri en aðallega fyrir slagverkið.
 
Karen:Þetta æfingabúðaform fínt en þeim þótti ansi löng pása milli kl. 17.00 og 21.00. Vantaði meira að gera. Æfingar styttri hjá stjórnendum en gert var ráð fyrir. Mótið ungt, margir ungir nemendur. Efnisvalið ekki spennandi, spurning hvort Brennið þið vitar ættu heima í rauða bandinu? LÆ nemendur ekki fullkomlega ánægð með efnisvalið. Hægt að velja verkefni með góða slagverksparta svo slagverksleikarar hafi nóg að gera.
 
Lárusútskýrði að hann var með unga sveit vegna sameiningar hjá sér.
 
Margrét:Ballið allt of langt og vaka til kl. 02. Maturinn ekki góður oft kaldur.
 
Össur:Fínt mót og nemendur ánægðir. Allir láta mótið ganga upp. Þarf að undirbúa mótið fyrr. Nafnalista á að vera hægt að senda út fyrr. Dagskráin samskonar og undanfarin mót. Útsetningar og nótur hægt að klára fyrr. Kokkurinn fékk ekki upplýsingar um mataróþol og skyldi svo ekki hvernig ætti að leysa vandann. Dagskrá SÍSL þarf að vera nákvæmari, þarf að gera ráð fyrir að ganga á milli staða. Þarf að virða aldursmörk og stjórnin á að taka á þessum aldursmörkum. Fínt að hafa A/B mót með æfingabúðaformi en ekki fyrir C/D mót. Eldri sveitirnar vilja spila sjálfar. Fámennar hljómsveitir fái tækifæri til að spila t.d. með vinahljómsveit sem væri skipulagt með löngum fyrirvara og nemendur fái þá tækifæri til að æfa með vinahljómsveitinni fyrir mótið. Hafa masterklassa fyrir C/D krakka. Skipuleggja þarf fyrirfram að raða í raddir. Verkefni ekki of erfið en of ungir þátttakendur á mótinu. Slagverkið klúður, Eggert Pálss. Ekki maður í verkefnið. Mjög mikil breidd í getu slagverksleikara. Hafa slagverkið í sveitunum. LÆ gekk vel. Frítími langur fyrir suma en ekki alla. Hvert er hlutverk stjórnenda þátttökusveita á mótinu? Þarf að skipuleggja það en vill hafa tækifæri til að flakka á milli og fylgjast með. Leggur til að eldri nemendur fái forgang í einhverju á mótunum t.d. að þurfa ekki að labba á milli staða. Fá einhvern rétt svo það sé fínt að vera elstur.
Gæsla alls staðar þarf að vera ströng. Matartímar skipulagðir þannig að það sé tími til að komast á milli. Gott á fá vatn á flöskum. Rúmt í herbergjunum. Draugasetrið var fínt. Gott að fá langan frítíma. Ánægð með taflborðið. Vilja hafa keppni á milli hljómsveita.
Ánægður að þessi fundur skuli vera haldinn. Þarf að halda utan um þessi gögn og gera verkferil til að vinna eftir fyrir komandi mót.
 
Halldór:Allir ánægðir en hittu stjórnanda mjög lítið vegna anna hans í SÍSL verkefnum. LÆ krakkar mjög ánægðir.
Útskýrir af hverju æfingastaðir voru settir eins og þeir voru, en gula sveitin átti að vera stærst en það breyttist eftirá.
 

  • Ánægja með að nóg var til af bolum en ekki nógu margir stórir svo fararstjórar fengu ekki boli.

 
Daðiraðaði sinni sveit fyrirfram en þeirri skipan breytt vegna samkomulags við Eggert Björgv. Þar sem samsetning sveitanna var ójöfn. Félagsleg samsetning sveitanna þarf að vera í lagi ekki bara getulega.
 
Vilborg:Krakkarnir ánægðir og húsnæðið gott.
Útskýrði hluti sem stjórnin var að undirbúa t.d. var reynt að skipuleggja slagverkið og haft mikið samband við ýmsa slagverksleikara. Eggert Pálsson ráðinn þar sem aðrir voru uppteknir í vinnu. Hann var mjög óskipulagður en það var líka mjög erfitt að skipuleggja þegar stjórnendur senda skráningu sína svo seint. Sent mikið slagverk austur svo ekki vantaði neitt, en sumt ekki notað þar sem ekki var vitað hvað ætti að nota.  Óánægð með að Lárus skuli hafa sent of unga hljóðfæraleikara á mótið og sendi sína skráningu ekki á réttum tíma og ekki með réttri skráningu svo ekki var hægt að sjá aldur nemenda.
Vantar gátalista fyrir svona mót til að vinna eftir. Allir stjórnarnmeðlimir SÍSL í fullri vinnu og komust ekki yfir alla þætti síðustu dagana fyrir mót. Er ekki sannfærð um þetta æfingabúðaform fyrir C/D sveitir og hafði áhuga á að hafa nokkurs konar val í boði á þeim tímum sem voru dauðir t.d. einhverja leiki eða annað sniðugt en ekki náðist að skipuleggja slíkt. Ánægð með ballið og hlómsveitina.
 
Einar sagði að hann tók ekki alla með úr sinni C – sveit á þetta mót til að standa við aldursskiptinguna á mótinu. Hann leggur til að vinna meira saman og dreifa ábyrgð á fleiri, hafa fleiri nefndir t.d. LÆ nefnd og mótsnefnd.
 
Daðileggur til að Daði, Eggert, Jóhann, Karen, Einar sem hafa öll haldið mót og ætla að senda inn gátlista til Daða fyrir 1. Des. Svo hægt sé að útbúa einn góðan gátlista.
Össurleggur til að dreifa verkefnum meira. Hafa C/D mót að vori og A/B mót að hausti.
 

  • Hafa fleiri nefndir: nótnavalsnefnd, mótanefnd, LÆ og fjölga í stjórn.

 

  • Ísfirðingar hafa áhuga á að halda C/D mót eftir 2 ár. Skoða leiguflugssamninga.

 

  • LÆ fjárhagslega gengur ekki upp eins og það er núna. Áhugi á að koma LÆ á Nótuna í Hörpu 18. Mars og svo norður á Akureyri á A/B mótið. Hægt að nota LÆ krakkana sem leiðtoga inni á mótinu, og hafa t.d. leiðtogaþjálfun samhliða því. Leysa afþreyingu A/B krakkana með LÆ spila t.d. Pétur og úlfinn, Tobba túbu, Myndir á sýningu. LÆ vantar rekstrarfé.

 

  • Fá upplýsingar um hvernig rekstarformið er hjá Ungsinfó, Ungfóníu, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna. Karen skoðar það.

 

  • Þarf að kenna krökkum að hlusta á tónleika, mikið blaður á tónleikum LÆ á Selfossi.

 

  • Athuga þarf Hof og skráningu þar. Tónlistarskólinn á Akureyri á nokkrar helgar þar. Kostar að koma LÆ norður og gistingu/fæði.

 

  • Mótanefnd gæti verið skipuð einum úr stjórn,  einum sem tekur á móti og einn aukanefndarmaður. Tillaga um að fá þann sem var að halda mót til að vera með í undirbúningi fyrir næsta mót.

 
Einarbúinn að skoða aðstæður á Akureyri og senda stjórninni upplýsingar.
 

  • Nú heita samtökin í þjóðskrá: Samtök íslenskra skólalúðrasveita.
  • Senda þarf út þátttökueyðublað fyrir næsta landsmót SÍSL fyrir jól.

 

  • Þessi fundur var góður og málefnalegur

 
Fundi slitið kl. 12.40