1. Stjórnarfundur 2012

Dagsetning: 
Tue, 03/01/2012

Stjórnarfundur SÍSL – Fundargerð nr.1 árið 2012
 
Fyrsti fundur ársins 2012 haldinn á heimili Halldórs kl. 14.00.
Þátttakendur: Halldór Sighvatsson, Vilborg Jónsdóttir, Eggert Björgvinsson
 

  • Fundur haldinn til að ákveða lagalista til að útsetja fyrir landsmótið. Margar hugmyndir komnar inn frá ýmsum aðilum að Norðan.
  • Listinn verður sendur til nótnanefndar og henni falið að velja útsetjara og lög til að fullvinna. Gæti orðið vandasamt að finna lög fyrir A – sveitir.
  • Síðasti skiladagur laga verður 1. Mars 2012
  • Á landsmótinu verða 3 lög á sveit. Fá nótnanefndina til að gera tillögur að lögum fyrir mótið.
  • Ákvörðun tekin að vera ekki með LÆ á landsmótinu á Akureyri. Guðmundur Óli ekki búinn að svara með æfingahelgi og margir hljóðfæraleikarara LÆ með áhyggjur vegna prófa. Einnig er ljóst að ekki er aðgengilegt verkefni eins og Karnival dýranna til að æfa og nota á þessu móti.
  • Leggja á til að LÆ spili í Hörpu á uppskeruhátíð Nótunnar 18. Mars. Þarf að athuga hvort Guðmundur Óli sé laus og einnig hvort það gangi upp vegna skipulags Nótunnar.
  • Lagt til að LÆ verði aftur næsta haust og óska eftir að Guðmundur Óli verði aftur stjórnandi.
  • Þarf að hugsa vel hvernig LÆ verður skipulagt og búa til eftirsóknavert námskeið og tónleika svo hljóðfæraleikararnir vilji taka þátt í þessu.

 
Fundi slitið kl. 16.00