Lög SÍSL


 

Lög Samtaka Íslenskra Skólalúðrasveita



Sett saman á fundi stjórnar 5. nóvember 1983.
Með breytingum frá aðalfundum 30. sept. 1884, 27. apríl 1985, 2. apríl 1987 og 30. maí 1997.

1. gr.
Samtökin heita: SAMTÖK ÍSLENSKRA SKÓLALÚÐRASVEITA, skammstafað S.Í.S.L., stofnuð 15. október 1983, af stjórnendum skólalúðrasveita.

2. gr.
Tilgangur þeirra og markmið er:

  1. Að auka og bæta hljóðfæraleik meðal barna og unglinga
  2. Að efla samvinnu milli leiðbeinenda skólalúðrasveitanna og félaga þeirra
  3. Að afla tillagna um lúðrasveitamót
  4. Að stuðla að sem bestri samvinnu við alla aðila, sem til greina geta komið, til eflingar á starfsemi skólalúðrasveitanna.
  5. Að standa að rekstri úrvalssveitar sem skipuð er þeim nemendum skólalúðrasveitanna sem lengst eru komnir í námi.

3. gr.
Kosnir skulu þrír menn í stjórn samtakanna, formaður, gjaldkeri og ritari og jafnmargir til vara. Skulu þeir kosnir á aðalfundi.  Stjórn tilnefnir tvo aðila í framkvæmdanefnd úrvalssveitar S.Í.S.L.

4. gr.
Aðalfundur skal haldinn á hverju landsmóti skólalúðrasveita og hefur hver stjórnandi atkvæðisrétt fyrir hönd sinnar sveitar. Í forföllum gildir skriflegt umboð til atkvæðisréttar, með undirskrift stjórnanda.  Mótshaldari, hverju sinni, boðar á aðalfund í samráði við stjórn S.Í.S.L., samtímis því sem hann sendir út mótsdagskrá.

5. gr.
Verkefni aðalfundar er sem hér segir:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkosning
  5. Kosning tveggja endurskoðenda
  6. Ákveðið gjald næsta stjórnartímabils
  7. Önnur mál

6. gr.
Stjórnanda eða fulltrúa hverrar sveitar ber að afhenda stjórn samtakanna, starfsskýrslu á hverjum aðalfundi, til varðveislu.

7. gr.
Tilkynna skal þátttöku á landsmótum S.Í.S.L., minnst 30 dögum fyrir dagsetningu þeirra, enda hafi mótshaldari tilkynnt þau tímamörk.
Þær sveitir, sem ekki virða þau, eru þar með búnar að fyrirgera rétti sínum til þátttöku í viðkomandi landsmóti.

8. gr.
Formaður eða meirihluti stjórnar boðar stjórnarfundi þegar þörf krefur.

9. gr.

  1. Sérhverri skólalúðrasveit er heimilt að ganga í S.Í.S.L.,svo framarlega, sem hún viðurkenni lög samtakanna.  Umsóknir sendist formanni S.Í.S.L.
  2. Úrsögn úr samtökunum þarf að vera skrifleg og sendast formanni fyrir aðalfund.

10. gr.
Til breytinga á lögum þessum, þarf einfaldan meirihluta á aðalfundi og skal þá gefa út nýtt lagasafn með breytingum.