Landsmótsgjald að þessu sinni verður 14.000 og greiðist fyrir alla sem koma á mótið. Sem sagt 14.000 X heildarfjöldi. Greiðist inn á reikning 0318-26-50081 kennitala 560687-1929 fyrir mánudaginn 3. október.
Kveðja Gjaldkeri
Vegna þess hversu seint margar sveitir byrja þetta skólaár hefur stjórnin ákveðið að framlengja umsóknarfrest fyrir LÆ til fimmtudagsins 8. September. Við biðjum stjórnendur að nýta vel tímann fram að þessum lokafresti og skrá nemendur sína inn sem fyrst.
Stjórn SÍSL sótti í vor um styrk fyrir LÆ til Menningarsjóðs Suðurlands. Okkur voru að berast þau gleðilegu tíðindi að við fengum 300.000 króna styrk til að koma þessu verkefni á koppinn. Vonandi verður þetta til þess að hvetja okkur öll enn frekar til að standa sem best að LÆ og þar með eflingu á öllu okkar starfi.
Góðir félagar. Nú höfum við fengið uppfærða heimasíðuna með lagfæringum á ýmsu sem ekki gekk nógu vel á fyrri síðu, auk þess sem myndasiða er komin inn. Stjórnendur geta sett sjálfir inn myndir en við munum senda póst með leiðbeiningum um hvernig það er gert.
Því miður urðum við að hætta við Lúðrasveit Æskunnar þetta haustið, vegna ónógrar þátttöku. Stjórn SÍSL hefur fundað um stöðu LÆ á tveimur fundum og munum við senda stjórnendum bréf með upplýsingar og fyrirspurnir er varðar framtíð LÆ.