Fundargerð 2008-01 --- 16. janúar 2008

Dagsetning: 
Wed, 16/01/2008

Stjórnarfundur SÍSL, þriðjudagur 16. janúar 2008.
Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.


Landsmót í Reykjanesbæ.

Útsetningar. Sama hugsun er á bak við þetta mót og það síðasta sem var haldið á Höfn í Hornafirði, það er að flytja nýjar útsetningar á mótinu, sem að samtökin gefa út eftir mótið (allar nema lag Trevors Ford, þar sem það er höfundarréttarbundið í Hollandi).  Austurstræti í útsetningu Össurar Geirssonar, tvö frumsamin stykki eftir Lárus Grímsson , Nína í útsetningu Martin Markvoll, Trevor Ford - Icelandic Rhapsody og útsetning af €œSuðurnesja-Bítlalagi€ frá Inga Garðari.

Eins og fjöldi þáttakenda gefur til kynna núna, þá munum við skipta þáttakendum í þrjár blásarasveitir og slagverkshóp. Slagverkshópurinn fær námskeið hjá Thom Hannum, prófessor við slagverksdeild University of Massachusetts og sér um Marching Percussion hóp þessa háskóla.

Stjórnendur. Á mótinu verðum við líka með gestastjórnendur frá Bandaríkjunum fyrir allar þrjár blásarasveitirnar. Þeir heita: Earl Raney, Joshua Barrol og Xydas Spiros. Allir þrautreyndir á stjórnenda pallinum. 


Dagskrá. Hún er birt hér með öllum fyrirvara um breytingar.
Föstudagur - mæting, reynt verður að hafa mætingu 17 - 18. Koma sér fyrir. Matur, æfing og svo mótssetning.

Laugardagur - Morgunmatur. Æfingar. Hádegismatur. Æfingar - kynnisferð - sund - kaffi. Æfingar. Kvöldmatur. Æfingar. Ball.

Sunnudagur - Morgunmatur. Æfingar. Hádegismatur. 13:00 áætlaðir tónleikar og mótsslit.

Áætlað gjald á þáttakanda á mótinu verður 8000 kr. Sem fyrr er þetta birt með fyrirvara um breytingar!

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.


Helga Björg Arnardóttir, ritari.