Fundargerð 2008-02 --- 30. janúar 2008

Dagsetning: 
Wed, 30/01/2008

Stjórnarfundur SÍSL

Stjórnarfundur SÍSL. Miðvikudagur 30. janúar 2008.

 
Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.


Landsmót í Reykjanesbæ.

 

Það virðist vera komið á hreint að hljóðfæraleikurunum verði skipt í þrjár sveitir og svo slagverkssveit. Þó svo að ekki séu allir búnir að ganga frá skiptingum í sveitirnar þá lítur út fyrir því að hver sveit verði með um 70-80 hljóðfæraleikara innanborðs. Enn er ekki fyrirsjáanlegt hversu margir verða þátttakendur á slagverksnámskeiðinu.

Matarmálin komin á hreint og verið að leggja síðustu hönd á dagskrá mótsins.

Nótnamálin komin einnig á hreint og verið að klára hönnun á bolunum.

Á ballinu á laugardagskvöldinu verður sjoppa og hörkuhljómsveit sem spilar undir dansi til miðnættis.

 

Aðalfundur SÍSL.

 

Áætlaður aðalfundur SÍSL verður 19. apríl, um hádegisbilið á stór - Reykjavíkur svæðinu. Nánari upplýsingar um staðsetningu og klukkan hvað kemur fljótlega eftir landsmót.

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

Helga Björg Arnardóttir, ritari.