Fundargerð 2008-05 --- 2. apríl 2008

Dagsetning: 
Wed, 02/04/2008

Stjórnarfundur SÍSL, miðvikudagur 2.apríl 2008.

Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.

 

 

Nótnaútgáfa.

Lögin frá landsmótinu eru í prentun og verða afhent 11. apríl á fundinum. Þeir sem ekki sitja fundinn fá útsetningarnar sendar. Einnig var unnið að næsta útgáfuverkefni SÍSL, sem er jólalagahefti með 9 jólalögum og 4 áramótalögum.           

Hugmyndir voru ræddar um breytt og ódýrara format að gefa út útsetningar á vegum SÍSL. Hægt væri að senda útsetningarnar í PDF formi til félagsmanna á disklingi, sem myndu svo prenta út þá parta sem notaðir væri hvert sinni. Sparast myndi peningur í prentun og hægt væri að koma efninu til félagsmanna á ódýrari máta. 

Aðalfundur.           

Farið yfir skýrslu stjórnar. 

Landsmót.

Uppgjör stendur enn yfir. Enn hafa ekki allir útistandandi reikningar borist þannig að lokatala er enn ekki komin. Athuga þarf að setja jafnvel staðfestingagjald á sveitirnar á landsmótið. Það gerðist í annað skiptið núna að stór hljómsveit dregur sig út úr mótinu á síðustu stundu og það skilur eftir sig kostnað sem fellur eingöngu á samtökin.

 

Rætt var um hvað vel hafði gengið og hvað mætti bæta á mótinu. Mikið var velt fyrir sér hvernig mætti halda gott mót þar sem allar sveitir eru með, A-B-C og D. 

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

 

Helga Björg Arnardóttir, ritari.