Fundargerð 2008-04 --- 12. mars 2008

Dagsetning: 
Wed, 12/03/2008

Stjórnarfundur SÍSL, miðvikudaginn 12.mars 2008.

 

Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
 

Aðalfundur SÍSL undirbúinn. Farið yfir dagsetningar og staðsetningu fundarins. Breyta þarf dagsetningunni frá því sem áður var gefið út. Tilkynning um fundinn verður send út fljótlega. Skoðuð voru lög samtakanna og athuga þarf breytingar á þeim. 

 

Farið yfir landsmótið í Reykjanesbæ. Ekki eru allir reikningar komnir í hús, þannig að lokastaða er ekki komin á hreint. Farið var yfir íslensku útsetningarnar sem voru notaðar á mótinu og farið í gegn um hverju þarf að breyta/bæta við þær fyrir útgáfu. Um er að ræða sex útsetningar og lög; Draumur um Nínu, Fjögur íslensk Bítlalög, Mulla, Malla, Austurstrætistangó og Gott er að gefa.

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

 

Helga Björg Arnardóttir.