Fundargerð 2008-03 --- 13. febrúar 2008

Dagsetning: 
Wed, 13/02/2008

Stjórnarfundur SÍSL, miðvikudaginn 13. febrúar 2008.

 

Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.

 

Skipting í hljómsveitirnar komin á hreint. Unnið í að skipta aðstoðarmönnum niður á sveitirnar. Búið að fá aukaslagverksfólk til þess að tromma í gulu, rauðu og grænu sveitinni svo að allir slagverkleikararnir séu lausir til þess að taka þátt í námskeiðinu.

 

Einhverjir af kennaraliðinu verða líka notaðir á hljóðfæri þar sem vantar í hópana. Það fólk verður látið vita.

 

Heildarfjöldi þáttakenda er kominn upp í 311 manns.

 

Slagverks kennari námskeiðssins, Thom Hannum, gaf fyrirmæli um skiptingu slagverksleikaranna á hljóðfæri, þannig að ekki séu allir að mæta einungis með sneril.

Hann virðist einnig koma vel undirbúinn því borist hefur til landsins sending frá D€™Addario(fyrirtæki sem hann er að kynna fyrir) sem inniheldur vinnuefni fyrir námskeiðið og kennslubækur.

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

 

Helga Björg Arnardóttir, ritari.