Fundargerð 2002-01 --- 30. janúar

Dagsetning: 
Wed, 30/01/2002

Stjórnarfundur SÍSL,

haldinn í Varmárskóla í Mosfellsbæ

miðvikudaginn 30. janúar 2002 kl. 9,30.


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson. 

1.      Aðsent efni

Áskrift hjá Margmiðlun vegna heimasíðunnar.  Stefán Ómar lætur setja hana á boðgreiðslur. 
NoMU, fundarboð fyrir aðalfund í apríl.  Vilborg Jónsdóttir fer á þann fund sem fulltrúi SÍL og SÍSL.  Þarnæsti fundur verður í Færeyjum í október og mun Birgir fara á þann fund.  Ánægjulegt að Færeyingar séu að koma meira inn í starf NoMU, en þeir hafa ekki sótt síðustu fundi. 

DAO-blaðið.  Mjög fínt blað, vandað og fræðandi jóla-og nýárseintak.  Athuga þyrfti með að fá áskrift fyrir íslenskar sveitir að þessu blaði.
Fréttabréf Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar.  Birgir sýndi nýtt fréttabréf Skólahljómsveitarinnar en fyrsta tölublaðið kom út nú í janúar.  Þetta er gott framtak og mjög gott að hafa svona miðil til að koma frá sér tilkynningum og fréttum úr starfi sveitanna.

2.      Nótur. Össur kynnti 10 útsetningar sem hafa verið unnar á síðustu tveimur árum og eru ætlaðar A og B sveitum sérstaklega.  Birgir og Stefán Ómar vilja gjarnan að SÍSL kaupi allan pakkann, enda séu þessar útsetningar í samræmi við þá stefnu SÍSL að gefa út meira efni fyrir byrjendur.  Umræða skapaðist um greiðslur fyrir útsetningar sem hafa hingað til verið mjög lágar og ekki í samræmi við tilkostnað og vinnuframlag.  Rætt um að setja upp ákveðið viðmið fyrir greiðslum fyrir útsetningar:

      Einföld útsetning, A-sveitar styrkleiki. 30,000

      Einföld útsetning, B-sveitar styrkleiki. 50,000

      Fullunnin útsetning, C-sveitar styrkleiki. 70,000

      Stór útsetning, D-sveitar styrkleiki. 90,000

Miðað er við að þessar 10 útsetningar gætu kostað um 15 - 20.000 fyrir hverja sveit, og er þá hver útsetning á u.þ.b. 1500 - 2000 krónur sem eftir sem áður er mjög lítill kostnaður.  Þess ber líka að gæta að allar hljómsveitir ættu að geta nýtt sér þetta efni, því það er einfalt og aðgengilegt. 

3.      Lúðrasveit Æskunnar.  Enn er ekki komið á hreint hverni LÆ verður háttað þetta árið.  Breytingar á skólatíma bæði í grunnskólum og tónlistarskólum hafa þar meðal annars nokkur áhrif.  Stjórn SÍSL hallast helst að því að hafa sumarmót, t.d. frá fimmtudagskvöldi til sunnudags og þá jafnvel helgina eftir 17. júní.  Þá mætti byrja æfingu kl. 20 á fimmtudegi, kl. 16 á föstudegi og hafa síðan langan laugardag, frá kl. 10 - 16.  Sunnudeginum yrði varið í stutta generalprufu og tónleika.  Tónleikastaðir gætu verið Hafnarborg, Viðistaðakirkja eða Ráðhús Reykjavíkur.  Ákveðið að boða Þorleik, framkvæmdastjóra LÆ á næsta fund til að ræða málið frekar.

4.      Næsta landsmót.  Næsta landsmót verður haldið á Akureyri næsta vor.  Dagsetningin er 13. - 15. júní 2003 og ættu menn að setja þessa dagsetningu strax í dagbækurnar sínar.

5.      Dagur Lúðrasveitanna.  Enn er verið að huga að því að koma á degi lúðrasveitanna.  Hugmyndin um laugardag fyrir sjómannadag virðist ætla að ganga upp, þó svo að á þessum degi gætu verið útskriftir í framhaldsskólum og prófum í grunnskólum ekki allstaðar lokið.  Ákveðið að stefna á þennan dag og minna stjórn SÍL á daginn.

6.      Næstu fundir.  Næsti fundur boðaður í Hafnarfirði þann 13. febrúar kl. 9,30. 

Ekki fleira gert og fundi slitið um kl. 11,30

Össur Geirsson

ritari