Fundargerð 2002-03 --- 21. mars
Dagsetning:
Thu, 21/03/2002
Stjórnarfundur SÍSL,
haldinn að Urðarstíg 10 í Hafnarfirði
fimmtudaginn 21. mars 2002 kl. 9,30.
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson. Þorleikur Jóhannesson framkvæmdarstjóri LÆ var boðaður á fund en tilkynnti forföll vegna vinnu eftir að fundur hófst.
1. Almennt. Í upphafi fundar var rætt um hljóðfærakennslu á skólatíma og mismunandi afstöðu fræðsluyfirvalda til slíkra mála. Einnig var fjallað um hugmyndir um að stofna sérstaka skólalúðrasveit í Hafnarfirði, með lauslegum tengslum við tónlistarskólann á staðnum. Það fyrirkomulag að reka skólalúðrasveit sem sjálfstæðan skóla virðist ganga mjög vel upp og vera gott svar við aukinni aðsókn í tónlistarskóla landsins. Einnig var rætt um Lúðrasveit Æskunnar en vegna forfalla Þorleiks, framkvæmdastjóra LÆ var nánari umræðu um hana frestað.
2. Nótur. Stefnt að því að koma út hinum nýju útsetningum Össurar í apríl. Hann mun yfirfara allar raddir og samræma uppsetningu. Rætt um jólalög og hvort SÍSL eigi að gefa þau út á sama formi og undanfarið eða selja þau utan SÍSL, t.d. í gegn um Tónastöðina.
3. Dagur lúðrasveitanna. Orðið aðkallandi að hitta stjórn SÍL vegna þessa máls. Ákveðið að halda fund með þeim fljótlega. Stefnt að því að hafa uppákomur sem víðast í tilefni dagsins, þann 1. júní næstkomandi.
4. BrazzBrothers. Rætt um hljómsveitina BrazzBrothers og hvort áhugi sé fyrir því að kaupa þá hljómsveit til landsins til að vera með námskeið fyrir hljómsveitarstjóra í því að vinna tónleikaprógramm án nótna. Áhersla á jazztónlist og afríska strauma. Ljóst að kostnaður yrði mikill og óvíst með þátttöku. Hugmynd söltuð að sinni.
5. Accent on Achievement. Össur gerði grein fyrir áhuga Alfreds Publication á að gefa út í samvinnu við Tónastöðina íslenskt hliðarefni við kennsluefnið Accent on Achievement. Þetta efni hentar nokkuð vel fyrir íslenskar aðstæður og myndi verða enn heppilegra með íslenskum lögum, tónfræði- og spunaefni
6. Styrkur frá ESB. Stefán Ómar kom með þær ánægjulegu fréttir að skólalúðrasveitin í Hafnarfirði hefur fengið dágóðan styrk frá ESB til að taka á móti þýskri hljómsveit í sumar og heimsækja þau til baka næsta sumar. Styrkurinn nemur nokkrum hundruðum þúsunda. Þetta er sérstaklega ánægjulegt þar sem skólasveitir hafa áður lagt mikla vinnu og tíma í að sækja um þessa styrki en ávallt fengið neitun. Það virðist því vera lag núna að endurskoða slíkar umsóknir til ESB. Áhugasamir geta snúið sér til Stefáns Ómars með fyrisrpurnir.
Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 10,45
Össur Geirsson
ritari