Fundargerð 2002-04 --- 7. apríl
Dagsetning:
Sun, 07/04/2002
Samráðsfundur SÍSL og SÍL,
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
sunnudaginn 7. apríl 2002 kl. 10,00.
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson frá SÍSL og Vilborg Jónsdóttir, Ásdís Þórðardóttir, Atli Týr Ægisson og Jón Ingvar Bragason frá SÍL.
1. Nótur. Vilborg gerði grein fyrir því að SÍL hefur keypt lagerinn af rauðu bókunum svokölluðu (Íslensk Alþýðulög). Þessar bækur verða ekki gefnar út aftur en þeir sem hugsanlega hafa áhuga á að kaupa bækur, t.d. til að fá nýjar bækur í stað týndra bóka geta haft samband við SÍL. SÍL er einnig að gefa út um þessar mundir efni𠀜Leikandi létt€, 11 íslensk og vel þekkt erlend lög fyrir lúðrasveitir, stórar sem smáar. Birgir gerði grein fyrir útgáfumálum SÍSL, nýtt efni fyrir A-B sveitir sem kemur út í mánuðinum. Einnig var rætt um aðgang SÍL að SÍSL efni (Suite Arktica II, Á Sprengisandi og Suðurnesjamenn) og um aðgang SÍSL að SÍL efni. Fyrirkomulagið verður þannig að hljómsveitum verður boðið að kaupa sér þetta efni ef áhugi er fyrir hendi. Þó samþykkt að SÍL sveitir fái án endurgjalds eintak af laginu Á Sprengisandi í útsetningu Páls P. Pálssonar.
2. NoMU. Vilborg fer á næsta NoMU fund sem fulltrúi SÍL og SÍSL. Þessi fundur eins og aðrir vorfundir er aðalfundur og verður þar kosið til sjórnar ásamt öðrum aðalfundarstörfum. Vilborg gerðir grein fyrir hljómsveitarnámskeiðinu í sumar, Nordens blÃ¥sermusikere, sem haldið er í Lahti í Finnlandi. Fulltrúar Íslands verða sex talsins að þessu sinni. Mögulega er einnig pláss fyrir euphonium og hornleikara en það skýrist innan skamms. Rætt um fyrirkomulag við að panta flug fyrir hópinn og erfiðleika við að fjármagna námskeiðið. Bent var á mikilvægi þess að auglýsa námskeiðið betur, bæði innan hljómsveitanna sjálfra og eins í fjölmiðlum. Ákveðið að NoMU-farar í sumar skili greinargerð um mótið sem hægt verður að senda til fjölmiðlanna og víðar.
3. Landsmót SÍSL. Birgir gerði stuttlega grein fyrir landsmóti SÍSL næsta ár og að sú hugmynd hefði komið fram að fá frumsamið tónverk fyrir mótið.
4. Dagur lúðrasveitanna. Mikið var rætt um dag lúðrasveitanna sem stefnt er á að halda hátíðlegan þann 1. júní næstkomandi. Æskilegt væri að sem flestar lúðrasveitir á landinu tækju á einhvern hátt þátt í deginum, t.d með skrúðgöngu og/eða tónleikum í sinni heimabyggð. Mikill áhugi var meðal fundarmanna um að halda veglega hátíð í Reykjavík þennan dag með þátttöku sem flestra sveita af suðvesur-horninu. Hugmyndin er að hittast t.d. í Hljómskálagarðinum og marsera með sem allra flestar sveitir inn á Ingólfstorg og leika þar sameiginlega nokkur lög. Gaman væri að fá sem flestar sveitir í skrúðgönguna, þær þyrftu ekki allar að spila í göngunni en sameiginlegir tónleikar yrðu á Ingólfstorgi í lokin þar sem allir gætu verið með allt frá þeim yngstu til hinna elstu. Nauðsynlegt yrði því að hafa einhverja æfingu fyrir konsertinn og myndi hún verða þá um morguninn, helst innandyra í einhverju íþróttahúsinu. Mikla áherslu verður að leggja á agamál. Mikilvægt er að ekki sé verið a𠀜berja bumbur og freta í lúðra€ óskipulega og ósamhæft, heldur að sýna hvers megnugar góðar lúðrasveitir eru. Fundarmenn skiptu með sér verkum við undirbúning dagsins og ákváðu að hittast aftur að viku liðinni á sama stað til að bera saman bækur. Verkefnin eru:
· Samband við Hitt Húsið um mögulega þátttöku
· Lögreglan og Strætó vegna lokunar á götum
· Kynningarþátturinn, bæði til okkar fólks og til fjölmiðla
· Laugavegssamtökin, athuga hugsanlegt samstarf
· Dagblöðin, kanna verð á auglýsingum
· Fjölmiðlar, kanna möguleika á umfjöllun
· Áhugi lúðrasveitanna á deginum
· Kynnir
Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 12,20
Össur Geirsson
ritari