Fundargerð 2002-05 --- 2. maí
Dagsetning:
Thu, 02/05/2002
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
fimmtudaginn 2. maí 2002 kl. 9,00.
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
Dagur lúðrasveitanna, 1. júní. Rætt um dag lúðrasveitanna 1. júní og fyrirkomulag hans. Ánægjulegt væri ef sem flestar hljómsveitir um land allt héldu upp á daginn á einhvern hátt t.d. með tónleikum eða skrúðgöngu. Góður vilji hefur komið fram hjá öllum sveitum á suðvestur-horninu að taka þátt í sameiginlegum hátíðarhöldum í Reykjavík. Þar sem LR er að leika í þjóðleikhúsinu þennan dag var ákveðið að fresta skrúðgöngunni til kl. 15,00 svo LR geti verið með. Dagskrá dagsins verður á þessa leið.
13,00 Byrjað að safnast saman í Hljómskálagarðinum
13,30 Samæfing allra þátttökusveita í Hljómskálagarði. Þar sem okkar hagur felst í því að tónleikarnir á Ingólfstorgi gangi sem best fyrir sig er nauðsynlegt að hafa góða samæfingu.
14,30 Samæfingu lýkur og eftir stutta pásu er stillt upp fyrir skrúðgönguna.
15,00 Skrúðgangan leggur af stað, gengið um Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Austurstræti inn á Ingólfstorg.
15,40 Tónleikar á Ingólfstorgi
16,00 Tónleikunum lýkur.
Lögin sem leikin verða á Ingólfstorgi eru þessi:
Öxar við ána, úts. Ellert Karlsson
Siggi var úti, úts. Össur Geirsson
Ísland, úts. Ellert Karlsson
Hver á sér fegra föðurland, úts. Ellert Karlsson
Marsbúa cha-cha, úts. Össur Geirsson
Á Sprengisandi, úts. Páll P. Pálsson, (endurunnið af Róari Kvam og Össuri Geirssyni)
Gert er ráð fyrir að allar sveitir geti spilað í Marsbúa cha-cha og Siggi var úti, en svo ræðst það af getu hvers og eins hve mikið hann spilar af hinum lögunum. Gert er ráð fyrir að einungis lúðrasveitir fullorðinna og lengst komnu skólasveitirnar leiki með í laginu Á Sprengisandi.
Um skipulag að öðru leyti:
Skrúðgangan. Allar sveitir taka þátt í skrúðgöngunni, en þurfa ekki að spila frekar en þær vilja. Yngri skólasveitir geta því marserað með, í búning og með hljóðfæri þó þær spili ekki.
Fánar: Æskilegt er að hver hljómsveit hafi fánabera og skarti sínum bæjarfána og einnig merki/fána hljómsveitarinnar þar sem slíkt er til.
Trommarar: Einungis átta slagverksleikarar leika með í sameiginlegu lögunum á Ingólfstorgi. Þeim verður stillt upp miðsvæðis í hópnum. Óskað er eftir einum trommuleikara úr hverri sveit fullorðinna og lengst komnu skólasveitunum í þennan hóp. Slagverksleikarar í yngri sveitum mega gjarnan leika á létt handslagverk í barnalögunum tveimur, þó viljum við forðast tambúrínur vegna þess skrölts sem frá þeim heyrist á milli laga. Kúabjöllur, klaves, bongótrommur, woodblock, triangel o.s.frv. eru heppileg hljóðfæri.
Nótnastólar. Gert er ráð fyrir að sveitir fullorðinna notu göngu-lýrur fyrir sig og minnki í ljósritun þau lög sem eru í A4 stærð. Yngri sveitir verða að hafa sinn fulltrúa á Ingólfstorgi sem bíður þeirra með nótnastóla. Þegar komið er á torgið gefst stutt stund til að setja upp nótnastólana áður er sameiginlegu lögin eru leikin.
Fjöldi þátttakenda. Vegna skipulags og uppröðunar á Ingólfstorgi er áríðandi að fá sem fyrst upplýsingar um áætlaðan fjölda þátttakenda frá hverri sveit fyrir sig.
Umgengnisreglur. Til að skrúðgangan og athöfnin á Ingólfstorgi gangi vel fyrir sig og verði okkur til sóma er nauðsynlegt að hafa eftirtalin atriði ofarlega í huga:
Agi. Sýnum aga og forðumst allan óþarfa hávaða (t.d. að blása ílúðra og berja bumbur á milli laga og á öðrum óviðeigandi stöðum). Þetta er algjörlega nauðsynlegt!
Nótnastólar. Forðumst skrölt og óþarfa bægslagang þegar nótnastólarnir eru teknir upp. Hver sveit þarf að hafa einhvern á sínum vegum á Ingólfstorgi sem passar upp á nótnastólana og aðstoðar við að afhenda þá þegar við komum á torgið.
Nótur - möppur. Á sama hátt og með nótnastólana er æskilegt að yngri sveitirnar hafi sínar notur á Ingólfstorgi, nema þær séu þeim mun nettari svo þau geti haldið á þeim í skrúðgöngunni.
Liðsstjórar? Æskilegt er að yngri sveitirnar hafi nokkurskonar liðsstjóra sem sjái um að koma í veg fyrir ærsl og læti og að hljómsveitirnar komi sómasamlega fram. Koma þarf í veg fyrir skvaldur og óróleika.
Eftir er að skipuleggja röð hljómsveita í skrúðgöngu og uppröðun á Ingólfstorgi. Það verður gert þegar nánari upplýsingar um fjölda þátttakenda liggja fyrir.
Ekki fleira gert og fundi slitið kl. 10,45
Össur Geirsson
ritari