Fundargerð 2008-06 --- 23.maí 2008
FUNDARGERÐ
Fundur haldinn 23.maí 2008 kl.10.00. Fundarstaður: Foldaskóli
Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar.
Ný stjórn samanstendur af:
Jóhann Morávek, Martin Markvoll, Einar Jónsson
Fráfarandi stjórn samanstendur af: Kári Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga Björg Arnardóttir
Mættir: Allir úr báðum stjórnum
1.Yfirtaka nýrrar stjórnar
a.Gögn færð milli stjórna; fjármál, félagaskrá, aðgangsorð, gamlar fundargerðir, gögn varðandi erlent samstarf ofl.
b.Kári situr enn með nótnasafn SÍSL en hyggst koma því til Einars
c.Kári upplýsir að greiðslur fyrir útsetningar hafi verið eftirfarandi: A-sveit 30 þús, B-sveit 50 þús, C-sveit 70 þús, D-sveit 90 þús
d.Kári segir fráfarandi stjórn helst hafa sinnt eftirfarandi fjórum þáttum:
d1.Útgáfa nýrra útsetninga (leggur til að spara megi í framtiðinni prentkostnað með því að prenta aðeins raddskrá en setja hljóðfæraraddir á cd sem fest verði inn á kápu raddskrárinnar)
d2.LÆ-Lúðrasveit Æskunnar.LÆ starfaði 1 á 5 árum m/prufuspil á landsmóti. LÆ ætti að hafa takmark að spila við ákveðið “grand” tækifæri.
d3.Landsmót lúðrasveita. Karen segir gott að stjórn SÍSL sjái um framkvæmd mótanna en ekki “heimamenn”. Síðustu landsmót (Höfn 2007/Reykjanesbær 2008) hafi verið 2007 landsmót þannig að næsta/næstu landsmót ættu að verða haldin 2009-2010. Kostnaður hefur verið ca.2500- IKR á mann í matarkostnað (ekki m/morgunmat). Gestgjafinn hafi móttekið ca.750- IKR+250- IKR fyrir eftirmiðdagskaffi. Etv. mætti greiða gestgjafa hærri upphæð. Einnig væri athugandi að hækka þáttökugjöldin til að styrkja SÍSL “kassann”
d4.Erlent samstarf
e.Fráfanandi stjórn telur æskilegt að samtökin hafi launaðann starfsmann, sbr. sambærileg samtök í nágrannalöndunum sem fjármögnuð eru að einhverju leiti með “lottó-peningum”. Jafnframt telur fráfarandi stjórn að kanna ætti hvort grundvöllur sé fyrir stækkun samtakanna, t.d. með því að bæta inn strengjahljómsveitum, kórum og því um líku.
f. Fráfarandi stjórn þakkað vel unnin störf síðustu árin. Tónlistarlífið í landinu á þeim mikið að þakka. Fráfarandi stjórn kveður og yfirgefur samkvæmið.
2.Valið í hlutverk.
Jóhann Morávek formaður,
Martin Markvoll gjaldkeri,
Einar Jónsson ritari.
Áður höfðu varamenn verið valdið á aðalfundi SÍSL þeir Daði Þór Einarsson og Lárus Grímsson.
3.Fjárhagsleg staða samtakanna Jóhann telur að styrkja þurfi fjárhagslegan grundvöll samtakanna og að sækja þurfi fjármagn út fyrir þáttakendur og meðlimi.
Tekur Jóhann að sér að ræða við þingmann/ráðherra varðandi heillavænlegar aðferðir til þess að sækja um styrki fyrir samtökin.
Einar tekur að sér að hanna “powerpoint” kynningu á samtökunum fyrir ráðamenn.
4.Landshlutamót Jóhann telur að SÍSL ætti að hjálpa til við skipulagningu minni móta, t.d. landsfjórðungsmóta og því um líkt. SÍSL ætti etv að hjálpa til við kynningu og tengslamyndun milli sveita.
5.Kynningar á samtökunu úti á landi Jóhann telur æskilegt að kynna samtökin á landsbyggðinni, sérstaklega þar sem endunýjun hefur orðið meðal kennara, hljómsveitarstjóra og skólastjóra. Eitthvað af útlendingum sem brýn þörf sé á að hjálpa til að komast inn í “bransann” og einnig að hjálpa þessum hópi í samskiptum við sveitarstjórnir og þess háttar.
Hugsanlega að halda SÍSL fundi í leiðinni úti á landi.
6.Varðveisla “menningarverðmæta” Stjórn samtakanna er sammála um að þau menningarverðmæti sem falin eru í útsetningum SÍSL á íslenskri tónlist séu umtalsverð og vert sé að varðveita.
Þess vegna beri að safna þeim öllum á einn vef sem aðgengilegur verði þeim hljómsveitum sem greitt hafi félagsgjöld.
Æskilegt sé þá að safna saman öllum tölvuskrám af útsetningum og safna þeim á eina heimsíðu.
Beri að stefna að því að skanna allar útsetningar sem ekki eru til á tölvutæku formi og tölvusetja.
Hugsanlega mætti sækja vinnuafl í vinnuskóla sveitarfélaganna til þess.
7.Önnur mál
Einar hefur orðið:
a. Stefna beri að því að ákveða landsmót 2009 sem fyrst og ákveða stað og stund með árs fyrirvara. Kanna Vestmannaeyja/Mosfellsbæ
b. Tímabært að huga að sumarnámskeiðum fyrir áhugasama blásara.
c. Félagalisti ekki til. Ekki er til félagalisti nema listi yfir hljómsveitirnar. Enginn listi er til yfir einstaklingana í samtökunum. Meira vægi við að þrýsta á ráðamenn við að sýna fram á hundruðir/þúsundir þáttakenda/meðlima heldur en lista yfir 15-25 misstarfhæfar lúðrasveitir. Þetta þarfnast frekari skoðunar með tilliti til félagafrelsis á Íslandi. Lögfræðiaðstoð etv. nauðsynleg auk lagabreytingar á lögum SÍSL.
d. Heimasíða samtakanna þarfnast upplyftingar. Stefna beri að endurhönnunnar heimasíðunnar. Búið verði til “platform” til niðurhals/upphald útsetninga samtakanna til þeirra sem heimildir hafa til þess. Þetta heldur nótunum á einum stað og sparar prentkostnað.
e. Ábyrgð dreyfð á meðlimi samtakanna. Brýnt er að “samtökin” verði meira “sam”-tök. Að virkja meðlimina til þáttöku í hinum ýmsu verkefnum sem liggja fyrir í nýju umhverði/veruleika hlómlistarstarfs í landinu.
f. SÍSL ætti í auknu mæli að sinna símenntun meðlima samtakanna með námskeiðshaldi.
g. Kennaramenntun í landinu í ólestri. SÍSL ætti að athuga hvort samtökin geti beytt sér fyrir umbótum/þrýstingi á ráðamenn menntamála á Íslandi.
Fundi slitið ca.kl 15