Fundargerð 2002-06 --- 12. september
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
fimmtudaginn 12. september 2002 kl. 9,30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
1. Fundatímar vetrarins. Fundatímar stjórnar ákveðnir. Að jafnaði verði fundir síðasta fimmtudag hvers mánaðar. Næstu fundir verði 26. sept. 31. okt og 28. nóv.
2. Landsmót. Ljóst er að aðstaða til landsmóts er mjög góð á Akureyri, gisting, tónleikastaður og sundlaug á sama svæð. Rætt um tímasetningu landsmóta almennt. Haustmót eru enn til umræðu. Ljóst að tíminn frá maíbyrjun nýtist okkur illa vegna samræmdra prófa, og prófa í grunn- og framhaldsskólum sem dekka allan mánuðinn. Birgir mun hafa samband við mótshaldara og ræða tónlist fyrir mótið, útsetningar og tónsmíðar, og framkvæmd mótsins almennt.
3. Nótur. Nú eru tilbúnar 11 útsetningar fyrir barnalúðrasveitir sem fara í póst á næstu dögum. Það tók lengri tíma en áætlað var að prenta pakkann og koma honum í dreifingu. Verðið á pakkanum til aðildarsveita SÍSL er 15.000 krónur sem gerir rétt innan við 1500 krónur á útsetninguna. Svo lágt verð er hvergi hægt að sjá á útgefnum nótum, enda allur kostnaður í lágmarki. Það er von stjórnar að þessum nótnapakka verði vel tekið, enda hér verið að bregðast við óskum félagsmanna um léttar útsetningar sem hægt er að nota í minni samspilshópum. Þessar útsetningar eru allar í A - B styrkleikaflokki og hafa allar verið reyndar hjá Skólahljómsveit Kópavogs og sumar þeirra einnig í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónskóla Sigursveins. Það er €œnæsta víst€ að allar SÍSL sveitir finna í þessum pakka efni sem þeim hentar og getur nýst þeim um ókomin ár.
4. NoMU. Birgir fer til Færeyja í október á næsta fund NoMU. Rætt um NoMU starfið og samvinnuna við SÍL. Athuga á með að hafa fund með SÍL áður en Birgir fer á fundinn í Færeyjum.
5. Dagur lúðrasveitanna. Rætt um dag lúðrasveitanna sem haldinn var 1. júní sl. Dagurinn gekk vel fyrir sig að mestu leyti þrátt fyrir úrhellisrigningu og margar sveitir stóðu sig mjög vel, höfðu vandað til æfinga og undirbúnings eins og best mátti vera. Ljóst að meira skipulag þarf til að dagurinn gangi enn bettur upp og meiri áhuga stjórnenda ýmissa sveita. Einnig þarf að leggja meiri áherslu á auglýsingar og samstarf við fjölmiðla.
6. Lúðrasveit Æskunnar. Stefán Ómar ræðir við Þorleik framkvæmdastjóra LÆ og boðar hann á næsta fund. Landsmótshaldarar hafa ákveðnar hugmyndir um stjórnanda og vilja koma að framkvæmd LÆ að þessu sinni. Rætt um prufuspil og framkvæmd þess. Líklegt fyrirkomulag er að haldnar verði tvær æfingahelgar í febrúar og mars og síðan verði æft föstudag, laugardag og sunnudag á landsmóti. Hugsanlegt að hafa eina æfingahelgi á Akureyri.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11,30
Össur Geirsson
ritari