Fundargerð 2002-07 --- 26. september
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn á Urðarstíg 10
fimmtudaginn 26. september 2002 kl. 9,30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson. Einnig sat Þorleikur Jóhannesson framkvæmdastjóri LÆ hluta fundarins.
1. Landsmót. Umsóknir um landsmót ársins 2005 frá síðasta aðalfundi skoðaðar. Birgir tekur að sér að ræða við fulltrúa hljómsveitarinnar á Akranesi um að halda landsmót 2005. Birgir hefur einnig haft sambnd við mótshaldara 2003 og nánari upplýsinga frá þeim er að vænta á næstu vikum. Minna þarf mótshaldara á að boða formlega til landsmóts. Rætt um skipulag landsmóta og kostnað, fjallað um tíðni móta og að hafa mótin jafnvel á 18 mánaða fresti, haust og vormót til skiptis.
2. Lúðrasveit Æskunnar. Setja þarf dagskrá/vinnuplan fyrir árið. Mikilvægt að stjórnendur sveitanna styðji sína nemendur og leggi áherslu á að nemendur sinni þessu vel ef þeir komast að. Rætt um framkvæmd prufuspilsins. Hugmyndin er að hafa prufuspil þrískipt:
· Sama verk fyrir alla nem. á sama hljóðfæri,
· Verk að eigin vali,
· Ólesið efni.
Inntökuskilyrði eru að vera orðin 14 ára, og vera hljóðfæraleikari í skólalúðrasveit. Einnig skal leikni viðkomandi miðist við IV - V stig. Þeir sem taka þátt í LÆ gangast undir þá skyldu að mæta á landsmót á Akureyri þar sem aðaltónleikar sveitarinnar verða haldnir. Inntökupróf verða haldin í janúar á næsta ári og innan skamms þarf að senda út umsóknir og auglýsa umsóknarfrestinn..
Æfingahelgar verði í mars og apríl og æskilegt að önnur æfingahelgin verði á Akureyri. Síðan verða æfingar föstudag, laugardag og sunnudag á landsmótinu og tónleikar á sunnudeginum ílok landsmóts.
3. Nótur. Nú er nótnapakkinn með 11 íslenskum og vel þekktum erlendum lögum farinn af stað til félagsmanna. Stjórnin hefur áhuga á að heyra frá stjórnendum um þessar nótur, hvort þetta nýtist sveitunum o.s.frv.
4. NoMU. Birgir er búinn að tilkynna þátttöku á fundinn í Færeyjum. Ákveðið að boða til fundar með SÍL innan skamms til að yfirfara sameiginleg málefni fyrir NoMU fundinn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11,30
Össur Geirsson
ritari