Fundargerð 2002-08 --- 14. október

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs

mánudaginn 14. október 2002 kl. 9,00



Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.  

Einnig sat Vilborg Jónsdóttir formaður SÍL fyrri hluta fundarins..  

 

1.      NoMU.  Fjallað um NoMU og ferð Birgis til Færeyja á næsta fund NoMU.  Rætt um möguleika á samvinnu allra áhugasamtaka tónlistarfólks á Íslandi.  Spurning hvort slík samvinna gæti rekið skrifstofu þar sem upplýsingum væri safnað og miðlað til félaganna.  Einnig yrði þar samastaður fyrir ýmis gögn sem skipta máli fyrir félögin.

Rætt um framtíð lúðrasveita og kennslu á blásturshljóðfæri.  Ákveðinn skuggi yfir hvoru tveggja um þessar mundir.

Er rétt að kaupa erlenda leiðbenendur til landsins til að vera með námskeið eða væri eðlilegra að styrkja fólk til að fara utan á námskeið?  E.t.v. fælist hlutverk SÍL/SÍSL í að afla upplýsinga um námskeið og koma á framfæri hér á landi.

Blásaranámskeið NoMU.  Athuga með að gefa fleiri hljóðfæraleikurum kost á að vera með.  Það á ekki að vera sjálfgefið að fólk komist aftur og aftur á námskeiðið og loki þannig fyrir nýliðun.  Rætt um að tengja LÆ við þessa sveit, t.d. á þann hátt að einn úr LÆ fá sem viðurkenningu að fara í NoMU sveitina.  Gengur þó ekki upp þegar LÆ starfar að mestu leyti á vorin.

Vilborg gaf skýrslu frá síðasta NoMU fundi og gaf Birgi ýmsar upplýsingar um starf SÍL til að fara með á fundinn í Færeyjum

2.      Fjármál.  Farið yfir rekstraráætlun næsta árs.  Send verður umsókn til menntamálaráðuneytisins um styrk fyrir næsta ár.

3.      Landsmót.  Undirbúningur kominn vel af stað fyrir norðan.  ganga þarf í að finna erlendan stjórnanda fyrir LÆ sem fyrst.  Þar sem norðanmenn hafa ákveðnar hugmyndir þar um er beðið eftir upplýsingum frá þeim.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11,15

Össur Geirsson

ritari