Fundargerð 2002-09 --- 1. nóvember
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn að Lágholti 1, Mosfellsbæ
fimmtudaginn 1. nóvember 2002 kl. 8,30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
1. Tónlistarkennsla á Íslandi. Fundurinn hófst á óformlegu spjalli um fyrirkomulag tónlistarkennslu á Íslandi. Rætt um nýlega tilraun Þóris Þórissonar sem fjallaði um áhrif þess að taka nemendur út úr tímum í Reykjavík til að sækja hljóðfæratíma.
2. NoMU. Birgir lagði fram greinargerð um fund NoMU í Færeyjum þann 26. og 27. október sl. Fram kom að áhugi er á að hafa NoMU fund á Íslandi í tengslum við 50 ára afmæli SÍL, árið 2004. Sagði frá styrkbeiðnum og þeirri kúnst að kunna að sækja um styrki, því það eitt að senda umsókn þó henni sé hafnað vekur athygli á verkefninu. Birgir leitaði eftir aðgangi að námskeiðum fyrir okkur Íslendinga og fékk ýmsar upplýsingar sem hann lagði fram, t.d. upplýsingar frá sænska skólahljómsveitasambandi um námskeið og mót á næsta ári. Einnig lagði hann fram greinargerðir frá hinum samtökunum í NoMU. Annars fór mestur tími NoMU fundarins íað ræða Nordiske BlÃ¥sersinfonikere hljómsveitina, sem nú verður kölluð Norræna Blásarasveitin (NB) á íslensku. Námskeið NB í sumar gekk mjög vel og búið að ganga frá því að sami stjórnandi verður aftur á næsta námskeiði, sem haldið verður í Hamar í Noregi. Líklegt er að námskeiðið 2004 verði haldið í Svíþjóð. Reikningsuppgjör námskeiðsins lagt fram. Fjármögnun gekk upp að þessu sinni, en ákveðið að reyna að fá styrk frá Norrænu ráðherranefndinni fyrir næsta námskeið. SÍL þyrfti að senda umsón eða erindi til Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Best væri að koma NB á samskonar fjárhagsgrundvöll og Orkester Norden. Þátttaka Íslendinga hefur verið góð á NB og vonandi að það haldi áfram. Í framhaldi af þessum umræðum vaknaði síðan aftur umræðan um stofnun regnhlífarsamtaka allra samtaka áhugafólks í íslensku tónlistarlífi.
3. Landsmót. Nú er komið formlegt boð frá mótshöldurum á Akureyri á landsmót dagana 13. til 15. júní á næsta ári. Beðið er eftir nánari upplýsingum t.d. varðandi erlendan stjórnand og hugsanlega komu norsku hljómsveitarinnar Brazz Brothers á landsmótið. Enn og aftur varð umfjöllun um tíðni landsmóta og Birgir upplýsti að fulltrúar landsmóts á Akranesi myndu skoða þann möguleika að færa landsmót 2005 fram til hausts 2004.
4. Rekstraráætlun. Farið yfir rekstraráætlun næsta árs. Ráðgert er að sækja um styrk til Menntamálaráðuneytisins vegna reksturs samtakanna á næsta ári.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,30
Össur Geirsson
ritari