Fundargerð 2002-10 --- 8. nóvember
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn að Urðarstíg 10, Hafnarfirði
föstudaginn 8. nóvember 2002 kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
1. Landsmót. Rætt um skipulag landsmótsins og framkvæmd þess. Enn beðið eftir svari frá nosrsku sveitinni Brazz Brothers um hugsanlega þátttöku þeirra. Ljós er að ef þeir koma á mótið verður ekki pláss fyrir LÆ á mótinu. LÆ myndi þá halda sína eigin tónleika, líklega í Reykjavík. Þá yrði unnið tvær stífar æfingahelgar og tónleikar haldnir í lok síðari tarnarinnar. Einnig eru uppi hugmyndir um námskeið fyrir kennara á landsmótinu í kennslu á básúnu fyrir mjög unga nemendur. Aðkallandi að ljúka öllum þessum málum sem fyrst til að geta gengið í að skipuleggja Lúðrasveit Æskunnar
2. Lúðrasveit Æskunnar. Brennur á að fara að senda út umsóknareyðublöð og upplýsingar um prufuspil. Þyrfti að senda út kynningu á sveitinni sem fyrst. Rætt um að hafa æfingahelgar LÆ :
· 21. - 23. febrúar og
· 28. - 30. mars,
með tónleikum þann 30. mars. Birgir verður í sambandi við Björn Sagstad um að taka þetta verkefni að sér.
3. Fjárhagsáætlun. Gengið frá fjárhagsáætlun næsta árs. Næsta skref er að senda inn umsókn til menntamálaráðherra um styrk vegna næsta starfsárs.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11,00
Össur Geirsson
ritari