Fundargerð 2008-07 --- 12.september 2008

Dagsetning: 
Fri, 12/09/2008

Símafundur 12.sept 2008. Mættir: Jóhann Morávek, Martin Markvoll, Einar Jónsson.

Fundur settur kl. 10.38

1.Landsmót 2009

Undirbúningur hafinn að landsmóti SÍSL 2009. Tveir aðilar hafa boðist til að taka við landsmóti; Skólalúðrasveit Vestmannaeyja (Eggert/Jarl) og Skólahljómsveit Mosfellsbæjar (Daði).

Á skiptu AB móti á Höfn voru ca. 512. Á skiptu CD móti í Reykjanesbæ voru ca.270

Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjum geta þeir tekið upp í fimm hópa. Það gæti hentað fyrir tvískipt mót, t.d. MosóAB/Vestm.CD. Mosfellingar gætu hinsvega etv. Tekið við óskiptu móti, þ.e. 1xA, 2B-,2C,1D, 1slagverk yngri, 1 slagverk eldri. Það þýðir 6 blásarasveitir og 2 slagverkshópar, samtals uppundir 8 æfingasalir. Biðja Daða um kynningu á húsnæði áður en eitthvað er ákveðið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einar

2.Starfsmaður SÍSL

Aðilar eru sammála um að æskilegt sé að hafa starfsmann á snærum SÍSL sem virkaði sem framkvæmdastjóri. Skilgreina þarf hlutverk starfsmanns en hann gæti t.d. undirbúið landsmót, uppfært heimasíðu, skipulagt sumarnámsskeið, séð um samningagerð fyrir samtökin í heild við t.d.tryggingarfélög, unnið í styrkjaumsóknum, farið á ráðstefnur erlendis ofl.

Kostnaður við slíkan starfsmann er gróft reiknað ca.6-7 milljónir á ári meðan meðlimagjald í SÍSL er 10 þús. á ári.

Vinna þarf greinargerð um starfsmann fyrir SÍSL

Kanna þarf nánar hvernig fjármögnun á sambærilegum samtökum er háttað í nágranalöndum, hringja í Sissel Larsen í Norsk Musikkorps Forbund

Athuga með að einstaklingar verði félagar í SÍSL og fjölga þannig félögum og hafa etv félagagjald á einstakling. Þetta er annmörkum sett vegna félagafrelsis á Íslandi. Athuga málið

 

 

 

 

 

 

 

STJÓRN

 

Martin

 

 

Einar

3.Jólanótur

Útgáfa á 13 jóla og áramótallögum í fullum gangi. Fara í prentun  í lok sept. Raddskrá prentuð, raddir gefnar út á netinu, á nýrri heimasíðu. Þetta sparar mikinn prentkostnað, auk þess að þá prenta stjórnendur bara út þær raddir sem við á. Ný útgáfa er þá alltaf aðgengileg og nótur týnast ekki.

 

 

 

Martin/Kári

4.Heimasíða uppfærð og endurbætt

Drög að nýrri heimasíðu var skoðuð og stjórnarmeðlimir fengu aðgangsorð/lykilorð. Almenn ánægja í stjórn með þessa vinnu hjá Einari og Malcolm Holloway.

 

5. Styrkjavinna

Jóhann leitar aðstoðar hjá málsmetandi stjórnmálamönnum um aðstoð við að skilja og ná árangri í styrkumsóknum fyrir samtökin.

Jóhann

6. Fundaform

Martin leggur til að stjórn fundi með Skype í framtíðinni. Einar stingur upp á myndsímtölum á fundum. Kanna þarf tæknilega hlið og möguleika á því.

 

Fundi slitið 12.12 (sign) Einar Jónsson