Fundargerð 2002-11 --- 28.nóvember

Stjórnarfundur SÍSL


haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs


fimmtudaginn 28. nóvember 2002 kl. 9,30


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.  Þorleikur Jóhannesson sat hluta fundarins.

1.      Rekstrarstyrkur.  Nokkrar breytingar gerðar á fjárhagsáætlun næsta árs og á erindi SÍSL til menntamálaráðherra um rekstrarstyrk fyrir næsta ár.  Gengið var frá bréfinu og gjaldkeri setur það í póst.

2.      LÆ.  Björn Sagstad er að athuga hvort hann hefur tíma til að sinna LÆ á næsta ári.  Karen Sturlaugsson frá Reykjanesbæ er tilbúin að taka eina æfingahelgi á móti Birni.  Athuga þarf með gistingu fyrir Björn á Akureyri, Birgir ætlar að athuga með íbúð hjá KÍ.  Ritari ætlar að senda fyrirspurn til NoMU um aðra stjórnendur til að hafa í bakhöndinni ef Sagstad getur ekki tekið verkefnið að sér.  Ákveðið að flytja fyrri æfingahelgina yfir á 28. febrúar til 2. mars, þar sem hún skaraðist við dag tónlistarskólanna.  Rætt um að hafa umsóknarfrest LÆ til 20. des. og prufuspilið 18. - 19. janúar.  Rætt um tengsl LÆ við landsmót og hvort það sé yfir höfuð æskilegt að tengja þetta saman.  Rætt um efnisval fyrir sveitina.  Ekki hægt að bíða lengi eftir efni.  Þurfum að athuga hvað LÆ á af efni sem hægt er að nota og hvort sveitir innan SÍSL eigi kannski gott efni sem hægt er að nálgast.  Prufuspilsefni verður komið til Þorleiks svo hann geti sent það út strax og umsóknarfresti lýkur.

3.      Félagaskrá.  Farið var yfir félagaskrá SÍSL.  Samtals eru nú 33 virkar sveitir í samtökunum af öllu landinu.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11,20

                        Össur Geirsson

ritari