Fundargerð 2002-12 --- 5. desember
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn að Lágholti 1
fimmtudaginn 5. desember 2002 kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
1. Landsmót. Mótshaldarar á Akureyri hafa beðið um að fá að fresta landsmótinu fram til haustsins 2003. Erindið rætt fram og til baka. Ljóst að helsta ástæða frestunar er sá möguleiki að fá norsku hljómsveitina Brazz-Brothers til þátttöku á mótinu. Niðurstaða stjórnarinnar var sú að þrátt fyrir kosti þess að halda haust- mót og gagnsemi þess að fá Brazz-brothers á landsmót, sé ekki forsvaranlegt að breyta þeirri dagsetningu sem búið er að stefna að og auglýsa, að svo stöddu. Því er lagt til að landsmót verði á Akureyri helgina 13. - 15. júní, 2003.
2. LÆ. Komnar eru tillögur frá Þorleiki að bréfum til stjórnenda og nemenda vegna LÆ. Þau bréf verða send út bráðlega. Næsta skref verður að hittast og skoða saman nótur í eigu SÍSL til að velja efni bæði fyrir prufuspil og til að nota á tónleikunum.
3. Reikningar vegna NoMU. Birgir lagði fram nokkra reikninga vegna ferðar á NoMU fund í Færeyjum í október. Frestað til næsta fundar
4. NoMU fundur. Halda þarf fund með stjórn SÍL vegna næsta NoMU fundar.
5. Kostnaðargreiðslur. Samþykkt að SÍSL greiði stjórnarmönnum kr. 15.000 vegna útlagðs kostnaðar vegna stjórnarfunda síðustu tveggja ára.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,45
Össur Geirsson
ritari