Fundargerð 2002-13 --- 30. desember
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
mánudaginn 30. desember 2002 kl. 10,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson. Þorleikur Jóhannesson sat þann hluta fundarins er sneri að Lúðrasveit Æskunnar
1. Landsmót. Ekki hefur heyrst frá mótshöldurum aftur varðandi dagsetningu mótsins, en þeir vildu athuga með að fresta mótinu til næsta hausts. Birgir mun fylgja því máli eftir. Rætt um ýmsa hluti varðandi landsmót og framkvæmd þess.
2. Lúðrasveit Æskunnar. Verið er að ganga frá því að ráða norska stjórnandann Kjell Seim til að stjórna LÆ á næsta námskeiði. Björn Sagstad sem stjórnaði síðasta námskeiði gat ekki tekið þetta að sér að þessu sinni þar sem hann var upptekinn við annað á þessum tíma. Björn sendir hins vegar öllum sem hann kynntist á Íslandi sínar bestu kveðjur og vonast til að geta komist aftur þó síðar verði. Kjell Seim hefur reynslu af því að stjórna svona úrvalssveitum og hefur m.a. stjórnað Norrænu Blásarasveitinni, sem NoMU stendur fyrir á hverju ári. Hann hefur stjórnað þar tvö síðustu ár og mun stjórna aftur í Bergen í sumar. Dagsetningar á æfingahelgum LÆ hafa nú verið festar og þær munu ekki breytast þó landsmótið hugsanlega verði fært til haustsins. Rætt um fyrirkomulag prufuspils. Prófað verður í fjórum hópum og reynt verður að ljúka öllum prufuspilum laugardaginn 18. janúar. Þorleikur mun senda út prufuspilsefnið þann 10. janúar og hefur fólk því eina viku til að æfa það áður en til prufuspils kemur. Þeir sem taka þátt í prufuspilinu þurfa að spila eitt skylduverk, eitt verk að eigin vali (hámark ein mín. að lengd) og stutt ólesið efni.
3. Nótnasafn. Eftir að formlegum fundi lauk fóru stjórnarmenn í gegn um nótnasafn LÆ. Skoðuð voru verk sem til greina koma sem efni fyrir LÆ í vor. Prufuspilsefni fundið til, klippt saman og ljósritað fyrir öll hljóðfæri og sent Þorleiki til útsendingar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12,15
Össur Geirsson
ritari