
Erfiðleikar við útprentun parta og raddskrár?


Komið þið sæl.
Einhverjir hafa átt í erfiðleikum með að prenta út nýju útsetningarnar, þ.e. þær nýju útsetningar sem settar hafa verið á heimasíðuna til að nota á Landsmóti A&B-sveita í Vestmannaeyjum. Þær stafa að einhverju leiti af misræmi í útgáfum (versions) af vafra notenda (browser) og útgáfum af pdf skrifurum útsetjara. Vefstjóri SÍSL, Malcolm Holloway er að skoða málið. Í millitíðinni, áður en þetta verður leyst, er hægt að komast framhjá þessu vandamáli með eftirfarandi hætti:
1) Farið á heimasíðuna http://www.sisl.is/
2) Farið í “innskráning” og sláið inn notendanafn og aðgangsorð sem ykkur var úthlutað á sínum tíma. Ef einhver er ekki kominn með það hafið þá samband við Einar 664-8189.
3) Farið í “Stjórnendur” efst til hægri.
4) Þar undir “sækja nótur”.
5) Veljið vinkomandi lag.
6) Hægrismellið á það sem þið viljið prenta út (í windows) og veljið “Save target as” eða “Save link as” og hlaðið niður (download).
7) Síðan opnið þið möppuna með laginu (open containing folder) og prentið út.
Þá ætti þetta að virka og þið notið góðra útsetninga smástund. Kveðja Einar