Fundargerð 2003-01 --- 12. janúar

Sameiginlegur fundur hjá SÍL og SÍSL


Haldinn í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar kl. 10:00

12. janúar 2003 


Frá SÍL eru mætt: Vilborg, Jón Ingvar, Atli, Ásdís og Unnur.

Frá SÍSL eru mættir: Birgir, Stefán Ómar og Össur.

STARFSEMI NOMU

Birgir fór á síðasta Nomu-fund, sem haldinn var í Færeyjum og sagði frá því helsta sem gerðist á honum. Hann kvað fundinn hafa verið mjög notalegan og afslappaðan. Mikið var rætt um námskeiðið og samnorrænu blásarasveitina. Það kom á óvart hversu margir þátttakendur voru frá Íslandi, miðað við hvað SÍL og SÍSL eru fámenn. Þegar námskeiðið var haldið á Íslandi var helmingur þátttakendanna Íslendingar. Einnig var rætt um hvort ekki þyrfti að vera meiri endurnýjun á námskeiðinu. Á hinum norðurlöndunum er litið á þátttökurétt á námskeiðinu sem n.k. viðurkenningu fyrir frammistöðu. Fjármál Nomu eru klár fyrir næsta og þarnæsta ár.


Í Færeyjum var einnig rætt um framkvæmdina á námskeiðunum. Könnun sem var gerð á meðal þátttakenda sýndi að þeir eru ánægðir með námskeiðið og hvernig skipulagið er á þeim. Birgir segir Íslendinga fá alveg jafn mikla athygli og aðra í þessu samstarfi þrátt fyrir smæð.


Stjórnandi blásarasveitarinnar á námskeiðum síðustu tveggja ára kemur til Íslands í vor, í tengslum við landsmót SÍSL. Það er ágætt að fá öðru hvoru mann erlendis frá til að vinna með lúðrasveitum á Íslandi, vegna þess hve íslensku samtökin eru fámenn og allir þekkja alla. Á fundinum kom fram að Íslendingar eiga rétt á þátttöku í öðrum námskeiðum á vegum Nomu.


Vilborg segir að það séu dálítil vandræði með að fá upplýsingar um námskeiðin með nógum fyrirvara.


Vilborg spyr einnig um hvernig starfsemin gangi í Færeyjum. Færeyska starfsemin líkist mjög þeirri íslensku og það er mikil uppsveifla þar. Færeyingar segjast ætla að taka meiri þátt í norrænu samstarfi heldur en áður. (Birgir fór á tónleika hjá færeyskri lúðrasveit, á þessum tónleikum kom einnig fram menntaskólakór frá Þórshöfn).


Vilborg lét ganga skýrslu yfir starfsemi Nomu. Einnig kom hún með umsóknareyðublöð og bæklinga um Nomu. Umsóknareyðublöðin eru aðeins ætluð þeim sem ætla að sækja um að komast á næsta námskeið. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Bæklingurinn er á öllum norðurlandamálunum. Í íslenska textanum eru nokkrar villur, sem eru vegna tölvuvandræða sem Vilborg lenti í þegar hún var beðin um að þýða textann á íslensku.


Nú þarf að ákveða hver inntökuskilyrði eiga að vera á Íslandi, t.d. hvort á að halda prufuspil. Það er ekki hægt að samræma inntökuskilyrði á milli landa. Það er tekið hart á aldurstakmörkum. Umsækjendur þurfa að vera á 18. ári eða eldri (til 25 ára).


Vilborg bað íslendingana á síðasta námskeiði að halda dagbók og taka myndir, til að skrifa blaðagrein. Einn skrifaði dagbók, sem lítið stóð í og ekki var hægt að nota myndirnar. Í hópi Íslendinganna þyrfti að vera a.m.k. einn sem er n.k. yfirmaður íslenska hópsins sem ber ábyrgð á hinum Íslendingunum.


Núna verður fyrrverandi þátttakendum ekki sent bréf frá nomu og boðin þátttaka aftur. Ef einhver sendir umsókn til nomu án vitundar SÍL og SÍSL verður umsóknin send til íslands. Á Nomu fundum hefur verið rætt um að 30% þátttakenda á námskeiðum þyrftu að hafa verið áður á námskeiði. Einnig að það væri eðlilegt að fólk kæmi ekki oftar en þrisvar sinnum, með undantekningum ef að það vantar hljóðfæri. Svipað fyrirkomulag er í L.Æ.


Á umsóknum fyrir síðasta námskeið var eitt af skilyrðum að menn væru á 6. stigi eða ofar. Rætt var um hvort að betra væri að hafa prufuspil. Það er gott, vegna þess að við vitum ekkert hvað umsækjendur geta. Einnig rætt hvort að betra væri að hafa miðstig sem kröfu og fá síðan umsækjendur í prufuspil.


Spurning um að bjóða hæfileikaríkum félögum í L.Æ. að sækja um þáttöku.


Einnig var rætt um hvernig fyrirkomulagið yrði ef haldið yrði prufuspil. Stjórnir SÍL og SÍSL þyrftu að dæma þá sem taka þátt í því.


Eitt af skilyrðunum fyrir íslenska umsækjendur er að þeir séu starfandi í lúðrasveitum SÍL og/eða SÍSL. Námskeiðið á að vera hvatning til þeirra sem eru í hljómsveitunum.


Ákveðið að Vilborg sendi út umsóknarblöð og kæmi í heimsókn til SÍL sveita (á höfuðborgarsvæðinu). 


Örlítið var rætt um að koma á meira samstarfi á milli áhugamannafélaga í tónlist á Íslandi. Þannig væri hægt að mynda stóran þrýstihóp, m.a. til að sækja um aðstöðu í tónlistarhúsinu sem stendur til að byggja í Reykjavík. 


 

9.-10. maí verður haldin ráðstefna í norræna húsinu í Reykjavík, sem er hluti af samnorrænni ráðstefnuröð um menningarmál. Á Íslandi verður fjallað um bókmenntir. Vilborg sendir þátttökutilkynningu fyrir sig til norræna hússins. Ekki er talið líklegt að það þurfi fleiri fulltrúa á ráðstefnuna, sennilega er nóg að hafa bara fleiri frá Íslandi sem áheyrnarfulltrúa. Þegar Vilborg hafði samband við norræna húsið til að spyrjast fyrir um þessa ráðstefnu var henni sagt að ekki væri byrjað að skipuleggja hana fyrir alvöru. Einnig komst hún að því að þar er til fullt af nótum, sem hafa safnast saman síðustu 30 árin. Þær eru lánaðar út - um að gera að nota þær.


DAGUR LÚÐRASVEITANNA

Ákveðið var að stefna að því að halda svoleiðis dag aftur 31. maí næstkomandi. Rætt um hvernig skipulagið á honum yrði. Spurnig hvað menn tækju þennan dag alvarlega. Rætt var um að það þyrfti endilega að gera eitthvað meira úr marseringunni. Spurning um hvort að það á að búa til meira €œshow€ úr henni. Fá t.d. götuleikhús eða eitthvað til að taka þátt í henni með lúðrasveitunum. Rætt um að SÍL sveitir þurfi að taka þessa uppákomu alvarlega og bera gönguna uppi. SÍSL kemur hins vegar með meirihlutann af þeim sem ganga í marseringunni. Einnig rætt um hvort að það þyrfti endilega að leggja mikið upp úr göngunni, hvort að það væri ekki nóg að hafa bara tónleika á Ingólfstorgi. Örlítið talað um hvort að e.t.v. ætti frekar að halda þennan dag á öðrum árstíma, t.d. í lok sumarsins. Báðum árstímum fylgja kostir og gallar sem voru ræddir. Einnig rætt um hvort að við ættum að fá fleiri áhugamannafélög til að taka þátt í þessum degi.

 

NÓTNAMÁL

Birgir minntist á að sumar lúðrasveitir spiluðu um áramót og þrettánda. Spurning um að gefa út nótur sem hæfa þessum dögum, en þær eru í Rauðu bókunum.


Ákveðið að stefna að því að endurútgefa Hvítu bækurnar og Jólabækurnar eftir Ellert óbreyttar og hluta af Rauðu bókunum - endurskoðaðan.


Einnig er stefnt að því að SÍL gefi út árstíðabundin lög, sem eru spiluð einu sinni á ári (1. maí, 17. júní, sumardaginn fyrsta, sjómannadaginn) í einni bók á 50 ára afmælisárinu 2004.


Einnig þarf að endurskoða útsetningarnar og raddskipanina í Rauðu bókunum.


Vilborg ræddi við Ellert fyrir nokkrum dögum. Það þarf að þrýsta á hann að koma Hvítu bókunum og Jólabókunum á tölvutækt form.


Þessi nótnaútgáfa veltur öll á því hvort að nýr menntamálaráðherra gefi okkur styrk. 


Að þessum umræðum loknum var sameiginlegum fundi lokið. Ákveðið var að halda sameiginlegan fund í byrjun mars og ræða dag lúðrasveitanna nánar. 


ATÆ,


ritari