Fundargerð 2003-02 --- 16. janúar
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
fimmtudaginn 16. janúar 2003, kl. 9,30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
- Lúðrasveit Æskunnar. Eitthvað hefur bæst við af umsóknum í LÆ. Þó ekkert komið enn frá Reykjavík. Hvað skal gera? Er jafnvel vitleysa að vera að eyða svona miklum tíma og peningum í LÆ ef áhugi er ekki meiri? Á ef til vill að fella LÆ niður? Skoðun stjórnar er einróma sú að það eigi alls ekki að hætta við. Frekar eigi að keyra námskeiðið af stað og reyna frekar að efla LÆ með því að koma sveitinni á fastari vinnugrundvöll, t.d. með því að hafa námskeið á hverju hausti, annað hvert ár með erlendum stjórnanda en hin árin með innlendum. Vilji er fyrir því að sá hópur sem nú myndast í LÆ, myndi grunn að þeirri sveit sem tæki til starfa næsta haust. Stefnt að því að endurnýjun milli ára yrði hófleg, þannig að á hverjum tíma séu ávallt reyndir liðsmenn.
Ákveðið að fresta prufuspilshelginni um eina viku. Ástæður þess eru hve seint umsóknir berast og að prufuspilsnótur eru ekki komnar til allra umsækenda. Prufuspil verður sunnudaginn 26. janúar í Hafnarfirði. Nánari prufuspilstímar verða ákveðnir og auglýstir síðar, þegar allar umsóknir eru komnar í hús. Reiknað er með ca. 10 mínútum á hvern hljóðfæraleikara. Prufuspilstímarnir verða sendir til umsækenda og einnig settir á heimasíðu SÍSL. Stjórnarmenn munu koma þessum upplýsingum áfram símleiðis til viðkomandi hljómsveitarstjóra. - Landsmót. Hringt var í mótshaldara á Akureyri til að fá á hreint með dagsetningu á landsmóti. Komið hefur í ljós að íþróttahúsið er ekki á lausu í haust og því staðfestist hér með að landsmótið verður á áður auglýstum tíma, 13. - 15. júní 2003.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,30
Össur Geirsson
ritari