Fundargerð 2003-03 --- 12. febrúar
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn í Lágholti 1
miðvikudaginn 12. febrúar 2003, kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson, Össur Geirsson og Atli Guðlaugsson.
- Heimsóknir erlendra sveita. Össur sagði frá heimsókn Sissel Larsen til Íslands í vikunni og hugmyndum hennar um kennslu og uppbyggingu skólahljómsveita. Hún verður hér á ferð í páskafríinu með úrvalssveit frá Oslóarsvæðinu, sambærilega við Lúðrasveit Æskunnar. Rætt um ferlið sem tengist beiðnum um heimsóknir og samskipti við erlendar sveitir. Okkur vantar eitthvað bakland með gistingu og þess háttar. Eftir hvaða leiðum berast svona fyrirspurnir, hvert fara þær og hvað verður um þær? Í því sambandi talað um beiðni frá franskri hljómsveit, sem hvergi virðist hafa komið fram og berst til SÍSL þegar of seint er að gera nokkuð í málinu. Enn og aftur bar á góma hugmyndin um regnhlífarsamtök íslenskra tónlistarhópa sem myndi geta sinnt svona erindum.
- Skipulag lúðrasveita í Reykjavík. Birgir segir leitt hve fáir komi frá Reykjavík í starf SÍSL, eins og til dæmis í LÆ. Rætt um fyrirkomulag sveitanna í Reykjavík og hugmyndir um tengsl þeirra við lúðrasveitir fullorðinna í höfuðborginni. Hver er framtíð skólalúðrasveitanna í Reykjavík? Atli sagði ýmislegt í bígerð varðandi sveitirnar og að m.a. hefði borgin lagt fram fjármagn til að þær gætu komið á landsmótið í júní.
- Nýtt tónverk. Jón Hlöðver Áskelsson er að semja nýtt tónverk fyrir SÍSL og landsmótið á Akureyri. Erindi frá honum um tónverkið var lagt fyrir stjórnina, ásamt samningsdröfum. Heildarkostnaður við verkið áætlaður 500.000 krónur, en þar af fjármagnar Jón Hlöðver sjálfur helminginn. Tillaga stjórnar er að 150.000 verði greidd af mótshöldurum og að SÍSL greiði 100.000. Hugmyndin er síðan að tónverkið verði sent íslenskum skólalúðrasveitum þeim að kostnaðarlausu. Rætt um hugmyndir að nafni fyrir tónverkið. Ymur og Seytla voru meðal hugmynda.
- NoMU fundur. Nokkrir punktar vegna ferðar Birgis á NoMU fund í Danmörku ræddir: LÆ og Kjell Seim, landsmótið og keppni, tónverk Jóns Hlöðvers, samstarfið við SÍL og NoMU, nótnaútgáfan, dagur lúðrasveitanna og hugmyndir um regnhlífarsamtök á Íslandi.
- LÆ. Æfingahelgin í Hafnarfirði nálgast óðfluga. Seinni æfingahelgin verður í Mosfellsbæ. Rætt um framkvæmd og skipulag mótsins.
- Landsmót. Farið er að liggja á að frekari upplýsingar berist frá mótshöldurum ásamt þátttökutilkynningum og kostnaðaráætlun.
- Farfuglaheimilið í Reykjavík. Erindi barst frá Farfuglaheimilinu um kynningu á starfsemi þess. Boð um að koma og skoða aðstöðuna og sjá hvað þau hafa upp á að bjóða. Þau munu senda boð um að skoða heimilið á næstu dögum.
- Rekstrarstyrkur frá Menntamálaráðuneyti. Össuri falið að ganga frá því að styrkur MMR upp á 400.000 krónur verði greiddur inn á reikning SÍSL
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,30
Össur Geirsson
ritari