Lúðrasveit Æskunnar, umsókn og æfingar
Lúðrasveit Æskunnar ætlar að hefja starfsemi á þessari önn. Allir þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að snúa sér til sins stjórnanda og sækja um. Lágmarksaldur er 14 – 15 ára en nemendur þurfa vera komnir vel af stað í miðnámi eða hafa sambærilega spilagetu. Hámarksaldur er enginn svo fremur sem viðkomandi sé í námi og eða spilar með lúðrasveit. Styrkleikagráða hljómsveitarinnar er sambærileg grænu sveitinni í Mosfellsbæ ekki léttari. ( CD ) Guðni Franzson stjórnar og æfir. Eftirfarandi lög verða æfð.
1. vindstig e: Guðna Franzson
2. Melodia (Guidelines for a Space Propulsion Device based on Heim's Quantum Theory) e: Jóhann G. Jóhannsson
3. Suite Arktica e: Pál Pampichler Pálsson
4. Sleigh ride e:Leroy Anderson úts: Stefan Schwalgin
5. Jingle bells
6. Silent night swing úts. Bryce Walker
7. O holy night úts. Einar Jónsson
og e.t.v. 1-2 önnur jólalög í léttari kantinum sem verður þá dreift á æfingarferlinu eftir þörfum.
Daganna 1.- 3. okt verður fyrsta æfingarhelgin og svo aftur 26. - 28. nóvember en þá verða jafnframt tónleikar. Hljóðfæraleikarar utan af landi verða að kosta sig sjálfir til Reykjavíkur en æfingar eru í íþróttarsal Foldaskóla í Grafarvogi og ætlar foreldrafélag Skólahljómsveitar Grafarvogs að vera okkur innan handar. Nemendur fá gistiaðstöðu í skólanum og verður allur matur framreiddur þar. Gjaldið er kr.12.000.- fyrir alla. Innifalið í því er matur og kaffi á æfingatímabilinu (2 helgar) og afþreying. Laugardaginn 2. okt. Kl: 17.00 verður farið á tónleika hjá Ungfó. Sjá nánar á http://www.sinfonia.is/tonleikar/nr/808
Stefnt er á að ríkisútvarpið taki þessa tónleika upp og sendi út síðar. Við ætlum að taka tónleikana upp og gefa út á DVD til hljómsveitarmeðlima.
Tíminn á milli fyrstu æfingarhelgarinnar og svo tónleikahelgarinnar á að nýtast til að æfa verkin heima.
Stjórn SÍSL