Fundargerð 2003-04 --- 26. mars

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn í Lágholti 1

miðvikudaginn 26. mars 2003, kl. 9,00

Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.



 

1.      Æfingahelgi LÆ.  Rætt um æfingahelgina, framkvæmd hennar og framgang.  Enn vantar óbó, fagott, saxófóna og básúnu.  Þarf að athuga hjá sveitunum hvort ekki finnist hljóðfæraleikarar í stöðurnar.  Þorleikur þarf að koma sveitinni á framfæri við fjölmiðla, reyna að fá umfjöllun í dagblöðum og sjónvarpi.  Senda tilkynningar til krakkanna um tímasetningar o.fl.  Rætt um efni fyrir sveitina.  Búið að senda Seim viðbótarefnið sem æft var fyrri helgina og hann kemur hugsanlega sjálfur með viðbótarefni.  Farið yfir þau hljóðfæri sem þarf að útvega: pákur, marimba, glockenspiel, bassatromma, trommusett, þríhorn, maracas, kúabjöllur, tambúrína og symbalar.  Einnig þarf að útvega nótnastóla.  Birgir sér um að útvega mat í hádeginu á laugardeginum.  Farið yfir dagskrána fyrir Seim, hver sæki hann á flugvöll o.d.frv.  Össur mun setja upp dagskrá og senda stjórnarfélögum.


2.      Tónverk Jóns Hlöðvers.  Til að hægt verði að senda út nýtt tónverk Jóns Hlöðvers þarf að laga fráganginn á nótnavinnunni.  Það er of mikið verk til þess að hægt verði að senda það út fyrir vorið. Bíður haustsins.


3.      Hljómsveitakeppni á landsmóti.  Samþykkt að ýta við landsmótshöldurum um að halda hljómsveitakeppni.  Hægt væri að nota tónverkið Castle of Bray sem keppnisstykki, en það er gamalt keppnisstykki frá Gautaborgarhátíðinni.  Það er til hér á landi og hægt væri að ljósrita það til notkunar á meðan beðið er eftir löglegum nótum að utan.


4.      Samstarf við Færeyjar.  Birgir hefur verið í sambandi við fulltrúa Færeyinga hjá NoMU. Athugað verður með samstarf við Færeyinga í sambandi við útsetningar, nemendaskipti, LÆ og fleira.

 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,30


Össur Geirsson


ritari