Stjórnin ræðir um stöðu LÆ og framtíð hennar
Því miður urðum við að hætta við Lúðrasveit Æskunnar þetta haustið, vegna ónógrar þátttöku. Stjórn SÍSL hefur fundað um stöðu LÆ á tveimur fundum og munum við senda stjórnendum bréf með upplýsingar og fyrirspurnir er varðar framtíð LÆ. Fljótlega upplýsum við svo um framhaldið og vonum að í framtíðinni getum við sett upp myndarlega úrvalssveit sem samanstendur af hljóðfæraleikurum af öllu landinu.