Fundargerð 2003-05 --- 29. apríl
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
þriðjudaginn 29. apríl 2003, kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
1. Landsmótið. Lítið upplýsingastreymi hefur verið frá mótshöldurum undanfarið. Farið var yfir drög að dagskrá sem mótshaldarar sendu frá sér og tillögur að sameiginlegum lögum. Gerðar tillögur að breytingum sem Össur mun kynna mótshöldurum, bæði hvað varðar dagskrána sjálfa og sameiginlegu lögin. Stjórnin vill ekki skipta sér um of af skipulagningu landsmóta, það er í höndum mótshaldara hverju sinni, en þó býður stjórnin fram þekkingu sína og reynslu af landsmótum auk þess sem búið er að benda mótshöldurum á að vinna að undirbúningi mótsins í samráði við þá sem héldu síðasta landsmót í Reykjanesbæ, enda var það eitt best heppnaða landsmót SÍSL frá upphafi. Samkvæmt upplýsingum mótshaldara verður mótsgjaldið 600 krónur. Ekki kemur fram hvað er innifalið í mótsgjaldinu.
2. Tónverk Jóns Hlöðvers. Norðanmenn hafa boltann hvað varðar flutning á nýju tónverki Jóns Hlöðvers Áskelssonar. Líklegast að þeir flytji lagið sjálfir á landsmótinu.
3. LÆ. Rætt um æfingar LÆ á landsmóti og skipulag vegna ferða Kjell seim til landsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,30
Össur Geirsson
ritari