Fundargerð 2003-06 --- 27. maí
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
þriðjudaginn 27. maí 2003 kl. 09:00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
- Landsmót. Farið yfir efni fyrir aðalfund SÍSL sem verður á landsmótinu í júní. Skýrsla stjórnar rædd. Reikningar eru að mestu tilbúnir fyrir endurskoðendur, þá Atla Guðlaugsson og Skarphéðin Einarsson. Mótshaldarar á Akureyri eru farnir að kalla eftir upplýsingum og mátti ekki seinna vera því skammur tími er eftir fram að landsmóti.
- Lög SÍSL. Fjallað um hugsanlegar lagabreytingar, bæði á 5. og 6. grein. Ákveðið að láta 6. grein, (Stjórnanda eða fulltrúa hverrar sveitar ber að afhenda stjórn samtakanna, starfsskýrslu á hverjum aðalfundi, til varðveislu.) standa óbreytta, en hvetja fólk til að sinna henni. Í 5. gr. þarf að standa skoðunarmenn reikninga í stað endurskoðendur þar sem það er víst lögverndað starfsheiti.
- LÆ. Rætt um upplýsingastreymi til þátttakenda. Þorleikur þarf að senda upplýsingar um mótið á Akureyri til allra þátttakenda og svo þarf að fá einhvern á landsmótinu til að sinna LÆ og Kjell Seim, þar sem Þorleikur verður ekki á mótinu. Nótnastólar og slagverk fyrir LÆ þarf að vera til staðar. Mótshaldarar sjá um slagverkið en Birgir ætlar að sjá um nóntastólana. Kjell Seim mun taka flugrútuna til Reykjavíkur þar sem Össur mun taka á móti honum. Þeir fara síðan saman í flugi norður. Gisting og flug fyrir Seim frágegnið. og greitt.
- Sytra. Mótshaldarar eru að æfa verkið og munu flytja það á mótinu.
- Dagur lúðrasveitanna. Dagskrá dagsins er komin á hreint. Tónleikar á Ingólfstorgi verða á tímabilinu 13 - 18. Þær sveitir sem vilja geta tekið stuttar göngur inn á Ingólfstorg og út af því aftur eftir tónleika. Mögulegt að ganga t.d. frá Hafnarbakkanum. Skólalúðrasveit Laugarnesskóla verður emð tónleika í Ráðhúsinu og hljómsveitin frá seltjarnarnesi verður viðloðandi hátíð á Austurvelli þennan dag. SkólahljómsveitVesturbæjar verður með skrúðgöngur í frá vesturbæ og niður að höfn. Búið er að ganga frá aðstöðu í ráðhúsinu til að pakka upp og geyma yfirhafnir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00
Össur Geirsson
ritari