Fundargerð 2003-07 --- 30. júní

Stjórnarfundur SÍSL 

haldinn að Lágholti 1

mánudaginn 30. júní 2003 kl. 09:30 


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson. 

1.      Næsti vetur. Fyrsti fundur næsta vetrar verði í Mosfellsbæ miðvikudaginn 20. ágúst.  Þá verði tekin ákvörðun um fundartíma vetrarins.

2.      Landsmót á Akureyri.  Þakka ber það sem vel var gert en ljóst að undirbúningi var nokkuð áfátt og upplýsingastreymi var of lítið.  Þetta eru hlutir sem þarf að skoða fyrir næsta mót.

Jákvæðar hliðar mótsins:                       

      Maturinn var góður og aðstaða í mötuneyti var góð.

      Mótssvæðið hentaði vel og aðstaðan almennt.     

      Dansleikurinn var góður og danshljómsveitin virkaði vel.

Neikvæðar hliðar mótsins:

Gisting: Of margir voru settir saman í stofu í gistingu, sumir sváfu á göngunum.

Skipulagi matmálstíma (skipting í A-B-C-D sveitir) var ekki fylgt eftir.     

Óskipulagður tími á föstudagskvöldi var mjög óheppilegur.

Sameiginlegir tónleikar A/B sveita voru of langir, allir áhorfendur farnir í lok tónleikanna.  Heppilegra að skipta þessum tónleikum í tvennt með 8 sveitir á hvorum tónleikum.

Sundið. Ekki var gert ráð fyrir því að borga þyrfti í sundlaugina. Það hefði átt að vera innifalið í mótsgjaldi eða í boði Akureyjarbæjar.

Síðdegiskaffi á laugardegi hefði átt að vera innifalið í mótsgjaldi eða að öðrum kosti látið koma skýrt fram í bréfum til stjórnenda að svo yrði ekki.

Stjórnun og skipulag á stóru samæfingunni vantaði.

Skipulag hljóðkerfis var ekki í lagi á æfingu, á tónleikum LÆ og á torginu.

Skipulag lokaathafnar var í lausu lofti.

Sjoppuna á ballinu hefði þurft að auglýsa.

Tengingu við bæjaryfirvöld á Akureyri vantaði.

Röð hljómsveita á tónleikum hefði þurft að skipuleggja betur, óheppilegt að vera að hringla með röðina rétt fyrir tónleika.

Árekstrar milli dagskráratriða á laugardeginum.

Auk þess má geta þess að afla hefði mátt auglýsinga í mótsskrána, sem hefðu gefið mótshöldurum góðan pening í aðra hönd. Mótsskráin stendur eftir sem heimild um landsmótin. 

3.      Lúðrasveit Æskunnar.  Rætt um starf Kjell Seim með LÆ. Ljóst að hann lagði mikla vinnu í samhljóm og að hljómsveitin leiki samtaka. Hann hefði þurft lengri tíma til að vinna með hópnum og náði vel til krakkanna sem voru mjög ánægð með hans vinnu.  Starf hans skilaði sér vel til krakkanna.  Birgir tekur að sér að skoða með stjórnendur fyrir næsta námskeið sem stefnt er að í október eða nóvember á þessu ári.

4.      Sytra.  Ræða þarf betur við mótshaldara á Akureyri um að taka þátt í kostnaði vegna tónverskins Sytra eftir Jón Hlöðver Áskelsson.  Einnig þarf að fá verkið betur upp sett svo hægt verði að gefa það út.

5.      Rekstrarstyrkur frá menntamálaráðuneyti.  Skoða þarf reikninga og sjá hvernig styrknum hefur verið varið.  Kostnaður vegna LÆ og tónverksins €œSytra€ eru stærstu einstöku útgjaldaliðirnir.

6.      Kanadamaður í heimsókn.  Maður að nafni Denis Beck, formaður kanadískra hljómsveitasamtaka þar í landi hefur leitað eftir fundi með íslenskum hljómsveitarstjórum.  Tónastöðin mun útvega húsnæði og veitingar fimmtudagskvöldið 10. júlí. Tölvupóstur var sendur á allar íslenskar skólalúðrasveitir um þetta efni og fólki boðið að koma á fundinn.

7.      Nótnaútgáfa. Rætt um að gefa út u.þ.b. 10 €œíslensk€ jólalög í léttum útsetningum með haustinu. Hugsanlegt væri að hafa nokkur áramótalög með í pakkanum.  Össur mun vinna að því að koma þessum útsetningum í útgáfu í sumar.

8.      Næsta landsmót. Rætt um hvar næsta landsmót ætti að vera.  Einnig skoðað hvort mögulegt sé að hafa mot á hverju ári.  Akranes hefur sótt um að halda mót árið 2005, en þá er 50 ára afmæli tónlistarskólans og tónlistarfélagsins í bænum.  Reykjavík hefur líka óskað eftir að fá að halda næsta mót.  Stjórninni líst best á að Reykjavík haldi mót haustið 2004 og Akranes haldi mót árið 2005, einnig að hausti. Birgir mun hafa samband við fulltrúa beggja staðanna og ræða þessa hugmynd.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:45 


Össur Geirsson

ritari