Fundargerð 2003-08 --- 20. ágúst

Stjórnarfundur SÍSL 

haldinn að Lágholti 1


miðvikudaginn 20. ágúst 2003, kl. 10,00 


 

Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.



 

  1. Fundargerðir. Farið var yfir fundargerðir síðustu funda.  Frá aðalfundi bar fyrst á góma umræðuna um næsta landsmót, spurningin um hvort mótið eigi að vera að hausti eða vori og um ferðastyrki til þeirra sveita sem lengst þurfa að ferðast.  Jón Hjaltason hefur boltann fyrir hönd Reykvíkinga hvað varðar mót haustið 2004.  Einnig er stefnt að móti á Akranesi haustið 2005. Mögulegt er að eyrnamerkja 2-300 krónur af hverju landsmótsgjaldi í sjóð til að standa straum af styrkjum til þeirra sveita sem lengst eiga að sækja. Þá var rætt um þær upplýsingar sem stjórn SÍSL óskar eftir að fá frá sveitunum. Össur er að leggja lokahönd á skjal sem notað verður til að inna eftir þeim upplýsingum.  Rætt um Dag Lúðrasveitanna og ákveðið að stefna að sömu tímasetningu að ári.  Komið var inn á dagskrá landsmótsins. Hugmyndir um að mótshaldarar leggi í framtíðinni fram dagskrá fyrir stjórn SÍSL til samþykktar með góðum fyrirvara.  Rætt um mótsskrána sem hefði mátt gera meira úr, bæði hvað varðar efni og uppsetningu. Fjölluðum einnig um heimsókn Kandamannsins Denis Beck og mikilvægi góðra tengsla og samskipta við kollega í útlöndum. Hugmyndir um

  2. Fundartímar.  Ákveðið að festa fundartíma vetrarins á næsta fundi sem verður 3. sept. í Kópavogi

  3. €œSYTRA€. Ekki búið að ganga endanlega frá fjármögnun verksins og eftir er að skila handriti til útgáfu.

  4. LÆ.  Bernhard Wilkinson og Kjartan Óskarsson gáfu ekki kost á sér til að stjórna LÆ í vetur vegna annríkis, en báðir voru mjög jákvæðir gagnvart þessu starfi. Búið er að ræða við Tryggva M. Baldvinsson tónskáld og hljómsveitarstjóra um að taka verkefnið að sér í haust.  Búið er að festa helgarnar 17. - 19. október og 31. október - 2. nóvember fyrir æfingahelgar LÆ.  Tónleikar yrðu þann 2. nóvember í lok seinni æfingahelgarinnar.  Stefán ómar athugar með að fá aðstöðuna í Hafnarfirði til æfinga.  Þeir sem voru í hljómsveitinni í vor þurfa ekki að prufuspila og eiga sæti sín vís. Þeir þurfa hins vegar að sækja um aftur, ætli þeir sér að vera með.  ákveðið að setja umsóknarfrest til 17. sept. og hafa prufuspilið 10 dögum síðar, eða þann 27. september.

  5. Reikningar. Ganga þarf frá uppgjöri fyrir flugmiða Kjell Seim milli Reykjavíkur og Akureyrar. Farið var yfir ýmsa reikninga vegna flugkostnaðar og fleira vegna landsmóts og NoMU fundar.
     

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11,40.

 
Össur Geirsson

 
ritari.