Fundargerð 2003-09 --- 3. september
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
miðvikudaginn 3. september kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
- Fundargerðir. Farið var yfir fundargerðir síðustu funda.
- Rekstrarstyrkur. Sækja þarf til Menntamálaráðuneytis um rekstrarstyrk fyrir næsta ár. Ákveðið að ganga frá því máli á næsta fundi.
- Nótnaútgáfa. Össur er að ganga frá jólaútsetningunum til prentunar. Fara þarf með sýnishorn í prentsmiðju til að fá verðáætlun. Raddskráin verður gormuð í bók fyrir öll lögin 10, en raddirnar verða á stökum blöðum í A4. Prentuð verða 40 sett sem þurfa að berast til hljómsveitanna ekki seinna en í byrjun nóvember. Reynt verður að ljúka frágangi fyrir 20. september.
- LÆ. Æfingaaðstaðan í Hafnarfirði er til athugunar. Ekki var laust í Ráðhúsinu fyrir tónleika 2. nóvember og var rætt um aðra kosti á fundinum. Byrjað verður á að athuga með Víðistaðakirkju eða Hafnarborgir í Hafnarfirði. Þorleikur hefur ekki getað gefið svar um hvort hann sinnir framkvæmdastjórastöðunni áfram. Þó verður reynt að fá hann til að sjá um umsóknir og skráningu á námskeiðið. Umsóknareyðublöð verði sett á heimasíðuna og einnig send með tölvupósti til stjórnenda. Ákveðið að boða Tryggva M. Baldvinsson á næsta fund til skrafs og ráðagerða. Einnig þarf að ganga frá fjármálum við hann.
- Upplýsingablað. Farið var yfir eyðublað sem Össur hefur gert til að safna upplýsingum um skólahljómsveitir á landinu. Ýmsar athugasemdir gerðar og ræddar og ákveðið að senda það síðan út hið fyrsta.
- Landsmót. Búið að tala við Jón Hjaltason og Atla Guðlaugsson um landsmót í Reykjavík haustið 2004. Líklegast er að einhver ein hljómsveit úr Reykjavík taki að sér að halda mótið. Svo virðist sem þeir hafi nokkurt bakland hjá borgaryfirvöldum fyrir mótinu. Einnig vita stjórnarmenn af því að Akurnesingar eru þegar farnir að huga að sínum undirbúningi fyrir landmót haustið 2005
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10,40,
Össur Geirsson
ritari.