Fundargerð 2003-10 --- 10. september
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
miðvikudaginn 10. september kl. 9,30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson, Össur Geirsson og Tryggvi M. Baldvinsson.
1. Lúðrasveit Æskunnar. Birgir fór í grófum dráttum yfir sögu LÆ fyrir Tryggva, sem mun verða stjórnandi LÆ á næsta námskeiði. Rætt um umfang og framkvæmd námskeiðanna, samsetningu hópsins, aldursskiptingu og úr hvaða hljómsveitum krakkarnir hafa verið að koma. Framkvæmdin þetta árið verður sú að haldnar verða tvær æfingahelgar með tónleikum í lok þeirrar seinni. Prufuspil verður haldið 27. september fyrir þá umsækendur sem ekki voru með á námskeiðinu síðasta vor. Þeir sem voru með í vor þurfa að sækja um aftur ef þau vilja vera áfram, en fara ekki í prufuspil. Fyrri æfingahelgin verður í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, en ekki er ljóst hvar seinni æfingahelgin verður. Athugað verður með að fá æfingahúsnaði Lúðrasveitarinnar Svans fyrir hana. Skipulag æfingahelganna er í gróft séð þessi:
Föstudagur samæfing 17:00 - 21:00
Laugardagur æfingar 10:00 - 18:00 (Raddæfingar o.fl.)
Sunnudagur samæfing 10:00 - 14:00
Efnisval: Ýmsar hugmyndir ræddar, m.a. Cold Shower eftir Tryggva, Tjarnarmars og annað efni eftir Pál Pampichler, Londonderry Air í úts. Grainger, Symphonic Songs for Band e. Bennet og Slava e. Bernstein. Einnig var tekinn dágóður tími til að skoða nótnasafn LÆ og velta upp ýmsum hugmyndum öðrum um efnisval. Tryggvi var með geisladiska með ýmsu efni sem til greina kemur að nota. Að lokum var rætt lauslega um fjármál og kostnaðaráætlun. Miðaða er við að þátttökugjöld standi að mestu leyti undir kostnaði við námskeiðið. Ákveðið að hittast aftur að viku liðinni í Hafnarfirði og skoða nýtt húsnæði lúðrasveita bæjarins í Lækjarskóla.
Fleira ekki gert og fundi lokið kl. 11:00
Össur Geirsson
ritari.