Fundargerð 2003-11 --- 17. september
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn í nýju húsnæði Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
miðvikudaginn 17. september kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson
- Úttekt á húnsæði. Byrjað var á því að fundarmenn skoðuðu nýtt húsnæði sem LH og LTH hafa til umráða í íþróttahúsinu við gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði. Þarna hafa sveitirnar fína aðstöðu fyrir æfingar og geymslur fyrir hljóðfæri og nótur. Okkur leist vel á og óskum lúðrasveitunum í Hafnarfirði til hamingju með plássið.
- Afmæli SÍSL. Undirbúningsfundur að stofnun samtakanna var haldinn fyrir sléttum 20 árum síðan, þann 17. september árið 1983 í Varmárskóla. Samtökin voru formlega stofnuð á fundi þann 15. október sama ár og við eigum því 20 ára afmæli um þessar mundir.
- Lúðrasveit Æskunnar. Umsóknir eru enn að berast og eru ekki mjög margar. Þó dreifast þær nokkuð jafnt á hljóðfærin þannig að útlitið er fínt fyrir komandi námskeið. Ákveðið að hringja í nokkrar hljómsveitir sem engar umsóknir hafa borist frá og athuga hvað veldur. Stjórnarmenn skiptu sveitunum á milli sín og munu hringja við fyrsta tækifæri. Össur og Stefán Ómar munu sjá um prufuspilið þann 27. sept. þar sem Birgir verður erlendis. Ákveðið að fá utanaðkomandi prófdómara til að dæma prófin, í það minnsta tréblásturshljóðfærin.
- Nótnaútgáfan. Jólalögin eru tilbúin til prentunar og var Össur með prufueintak til sýnis á fundinum. Birgir og Össur fara á fund í prentsmiðjunni þann 22. sept. til að fá nákvæmt verðtilboð og athuga með frágang pakkans. Ákveðið að selja pakkann á 10.000 krónur og þar sem lögin eru tíu er verðið 1.000 krónur að meðaltali á lag.
Fleira ekki gert og fundi lokið kl. 10:00
Össur Geirsson
ritari.