Fundargerð 2003-12 --- 3. október

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs

föstudaginn 3. október kl. 10,00 

Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson                       


 

  1. Lúðrasveit Æskunnar. Farið yfir umsóknir og prufspil vegna LÆ.  Nokkuð barst af umsóknum eftir að umsóknarfrestur rann út og að afloknu prufuspili er sveitin nokkuð vel skipuð.  Allir sem mættu í inntökuprófið voru dæmdir hæfir, en þrjír hljóðfæraleikarar voru nokkuð á mörkunum með að komast inn.  Eftir nokkrar umræður var ákveðið að taka þessa þrjá inn í sveitina, þar sem þau gætu verið á neðri röddunum á sitt hljóðfæri.  Einn mætti ekki í próf og fimm umsækjendur frá Hornafirði verða dæmdir í heimabyggð eftir helgina.  Þrjár umsóknir bárust eftir að prufuspil fór fram og verður þeim umsóknum vísað frá í bili, nema ef í ljós kemur að það vanti hljóðfæraleikara á viðkomandi hljóðfæri.  Össur mun senda staðfestingu til þeirra sem komust inn með tölvupósti og var einnig rætt um að láta allar upplýsingar til krakkanna í LÆ fara um tölvupóst. Það er því mikilvægt að allir gefi upp virkt netfang svo upplýsingar komist til skila.

  2. Nótnaútgáfan.  Próförk frá prentsmiðjunni að jólalögunum var lögð fram á fundinum. Ákveðið að prenta raddirnar beggja megin á blaðsíður til að spara prentkostnað.  Þar sem raddirnar eru hvort sem er hugsaðar til ljósritunar ætti það ekki að koma að sök. Raddskráin verður í gormabók.  Verðtilboð hljóðar upp á réttar 100.000 krónur, miðað við að pökkunum sé skilað flokkuðum og í umslögum.  Birgir fer strax að loknum fundi í prentsmiðjuna til að útskýra okkar hugmyndir og setja prentun af stað.  

Fleira ekki gert og fundi lokið kl. 11:40


Össur Geirsson

 
ritari.