Fundargerð 2003-13 --- 14. október
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn að Lágholti 1
þriðjudaginn 14. október kl. 9,00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson
- Umsókn til ráðuneytis. Stefán Ómar mun draga saman fjárhagsupplýsingar sem fylgja eiga umsókn til menntamálaráðuneytis um rekstrarstyrk fyrir árið 2004. Bæði þarf að senda ársreikning síðasta árs og áætlun fyrir næsta ár. Einng verður í umsókn fjallað ítarlega um fyrirhuguð stórvirki ársins.
- Jólalög. Jólalögin tilbúin til útsendingar. Stjórnin hittist á morgun til að ganga frá efninu til póstsendingar. Pakkinn ætti að vera kominn til SÍSL félaga vel fyrir næstu mánaðarmót.
- SYTRA. Jón Hlöðver er að vinna í því að ganga frá verkinu til útgáfu. Þar sem önnur verkefni liggja á stjórn SÍSL núna er ekki sett tímapressa á þetta verk.
- NoMU. Næsti NoMU fundur verður á Íslandi í maí. SÍSL og SÍL munu sjá sameiginlega um framkvæmd. fundarins.
- LÆ. Sveitin er vel skipuð þetta árið, rúmlega 50 manns hafa skráð sig og raðast nokkuð vel á hljóðfærin. Þó væri gott að fá einn túbuleikara í viðbót og einn til tvo í slagverk (mallet). Ekki búið að festa tónleikahús en Seltjarnarneskirkja er líklegur og vænlegur kostur. Farið yfir efnisskrá LÆ. Stefán Ómar sér um að fjölfalda raddir fyrir helgina. Boðið verður upp á mat í hádeginu á laugardegi, báðar æfingahelgarnar.
Fleira ekki gert og fundi lokið kl. 10:15
Össur Geirsson
ritari.