Fundargerð 2003-14 --- 18. nóvember

Stjórnarfundur SÍSL 

haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs

þriðjudaginn 18. nóvember kl. 9,00 


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson                       

 
  1. LÆ. Stjórn SÍSL er sammála um að Tryggvi M. Baldvinsson hafi staðið sig mjög vel sem stjórnandi LÆ.  Ljóst að hann vinnur öðruvísi en Norðmennirnir sem hafa stjórnað LÆ undanfarin ár, en hann nær vel til krakkanna og fékk mikið út úr hljómsveitinni.  Stjórnin hefur vilja til að fá Tryggva til að semja tónverk fyrir LÆ í náinni framtíð.  Til að svo megi verða þarf að fá utanaðkomandi fjárstuðning, t.d. frá menningarsjóðum.  Fjallað var almennt um framkvæmd námskeiðsins.  Flest allt gekk eins og í sögu, en vilji stjórnar er að ná fram meiri breidd í sveitina með þátttakendum frá fleiri hljómsveitum.  Einnig þarf að koma sveitinni meira á framfæri og afla fjár til verksins, svo lækka megi eða fella alveg niður námskeiðsgjaldið.
  2. Umsókn til ráðuneytis.  Farið var yfir umsóknina frá síðasta ári og drög lögð að næsta bréfi.  Ákveðið að klára bréfið með e-mail samskiptum og halda næsta stjórnarfund í janúar.
Fleira ekki gert og fundi lokið kl. 10:10


Össur Geirsson

ritari.